JAC kemur á íslenskan markað

Lestími: < 1 mín

Suzuki-umboðið hefur tekið við sölu á kínverska rafbílamerkinu JAC Motors. Af því tilefni verða tveir nýir JAC-rafbílar frumsýndir í Suzuki-umboðinu í Skeifunni næstkomandi laugardag. JAC T9 EV er fjórhjóladrifinn rafmagnaður pallbíll sem er hannaður til að uppfylla allar notkunarþarfir. Hann getur bæði sinnt hlutverki sterkbyggðs atvinnubíls og þægilegs fjölskyldubíls. 

T9 EV er hannaður til að mæta fjölbreyttum kröfum og sameinar afl, drægni og nútímatækni í einum traustum pakka. Rafhlaðan er 88,02 kWh sem skilar bílnum 300 hestöflum og gefur allt að 435 km drægni.

Það má finna staðalbúnað eins og 10” snertiskjá, Apple CarPlay og Android Auto snjallsímatengingu, fjarlægðarskynjara að framan og aftan, rafdrifið sólþak, blindsvæðisvörn (BSD), vehicle to load (V2L), 360° myndavélakerfi, álfelgur og forhitun rafhlöðu við lágt hitastig. 

Fólksbíllinn, JAC E30X, verður einnig frumsýndur en hann er nettur og hagkvæmur rafbíll með rúmgóðu innanrými. Bíllinn sameinar góða drægni og þægindi í daglegri notkun. E30X kemur með 51,5 kWh sem skilar bílnum 136 hestöflum og allt að 524 km drægni. 

Staðalbúnaður sem fylgir með er Apple CarPlay og Android Auto snjallsímatenging, 12” LED snertiskjár, 360°myndavélakerfi, panorama glerþak, 4 ISOFIX festingar, vegan leðuráklæði, kæling í framsætum, geymsluhólf með kæli- og hitunaraðgerð í armhvílu.

Deila grein: