Honda ZR-V er nýjasti fjölskyldumeðlimur japanska bílaframleiðandans en bíllinn var frumsýndur hjá bílaumboðinu Öskju á dögunum.Honda ZR-V hefur stílhreina hönnun og sameinar góða akstursleikni og tæknilegt öryggi. Bíllinn kemur með e:HEV drifrás sem notar blöndu af rafmótornum og 2 lítra bensínvél.
Auk þess er hann búinn endurnýjuðu hemlakerfi sem hleður inn á rafhlöðu bílsins. Drifrásin skilar bílnum 184 hestöflum og togið er 315 Nm. Hægt er að auka kraftinn með Sport aksturs stillingu en auk þess veitir snjóstilling bestu mögulegu akstursupplifun við vetraraðstæður. Það er möguleiki að fá Honda ZR-V í Advance útfærslu sem kemur með ríkulegum staðalbúnaði.
Innanrými ZR-V er hannað með þægindi í huga, en þar er að finna gott geymslupláss og fjölda hleðslutengja. Það má einnig finna hituð fram- og aftursæti með leðuráklæðum sem tryggja hámarksþægindi.
Það fylgir með nýr stafrænn upplýsingaskjár fyrir enn betra öryggi. Advance útfærslan kemur með framhliðarskjá sem miðlar mikilvægum upplýsingum. Nýjasta kynslóð Honda CONNECT upplýsinga- og afþreyingar kerfisins býður upp snjallsímatenging í gegnum Apple CarPlay og Android Auto.







