Nýr Toyota C-HR+ frumsýndur á laugardaginn

Lestími: < 1 mín

Toyota á Íslandi frumsýnir nýjan rafmagnaðan C-HR+ næsta laugardag, 21. mars. Þetta er þriðji meðlimur C-HR fjölskyldunnar hjá Toyota en fyrir eru C-HR Hybrid og C-HR Plug-in Hybrid. Það verður hjá viðurkenndum söluaðilum Toyota í Kauptúni, Reykjanesbæ, á Selfossi og Akureyri frá kl 12 – 16. 

Hvað má finna í nýja C-HR+?

C-HR+ kemur með 77 kWh rafhlöðu og fæst bæði framhjóladrifinn og fjórhjóladrifinn. Framhjóladrifna útfærslan er 224 hestöfl og með allt að 600 km drægni samkvæmt WLTP-staðli. Fjórhjóladrifna útfærslan er kraftmeiri og framleiðir 343 hestöfl og með allt að 505 km drægni samkvæmt WLTP-staðli. 

14” snertiskjá og háþróuð aksturs aðstoðarkerfi

Bíllinn býður upp á hraðhleðslu og tekur u.þ.b. 28 mínútur að hlaða frá 10% – 80% við kjöraðstæður. Í innanrými bílsins má finna stafrænt mælaborð, 14” snertiskjá og háþróuð aksturs aðstoðarkerfi sem hjálpar ökumanni og bætir aksturseiginleika. Það má einnig finna þráðlausa tengingu við snjallsíma, JBL hátalara og tvær þráðlausar símahleðslur.

C-HR+ er því öflugur og sprækur fjölskyldubíll og getur dregið 1,5 tonn og kemur í tveimur útfærslum, Active+ og Style.

Deila grein: