Verktakar á vegum Vegagerðarinnar hafa malbikað um 80 þúsund fermetra á höfuðborgarsvæðinu það sem af er sumri. Gott veður fram þessu gerir það að verkum að vinnan gengur afar vel.
Reykjavíkurborg áætlar að eyða rúmum milljarði króna í malbikunarframkvæmdir í sumar. Hjá Vegagerðinni, sem sér um viðhald þjóðvega innan höfuðborgarsvæðisins, nemur upphæðin rúmum 600 milljónum auk 85 milljóna í viðgerðir. Malbikunarflokkar hafa verið að störfum frá því í vor.
Haft er eftir Birgir Blöndahl Arngrímsson verkefnastjóri hjá Colas Ísland á ruv.is að götur og vegir komi misvel undan vetri. Á sumum stöðum er ástandið frekar slæmt.
Malbikunarflokkar hafa verið að störfum frá því í vor. Birgir Blöndahl Arngrímsson verkefnastjóri hjá Colas Ísland segir að vinnan hafi gengið vel
„Það er búið að ganga gríðarlega vel í sumar. Við komumst hratt af stað. Veðrið er búið að leika við okkur síðustu viku þó það hafi komið rigning inn á milli. Við erum búnir að malbika tvo þriðju af höfuðborgarsvæðinu fyrir Vegagerðina þannig að þetta skotgengur. Við erum búnir með 80 þúsund fermetra, eða 8 þúsund tonn af malbiki og eigum svona 40 þúsund fermetra eftir,“ segir Birgir í samtali við ruv.is
„Það eru djúp hjólför og þau eru oft komin í gegnum núverandi malbikslag og ofan í það næsta sem segir sig sjálft að það er slysahætta,“ segir Birgir.







