Porsche 911 kom fyrst á markað árið 1964 og var hannaður af Ferry Porsche. Síðan þá hafa aðrir snillingar komið að hönnun bílsins og uppfært 911 í takt við nútímann. Á meðal þeirra eru Anatole Lapine sem hannaði 911 G útfærsluna, Harm Lagaay og Michael Mauer sem hefur séð um hönnunina síðan 2004.
Porsche 911 hefur lengi verið vinsæll í Bandaríkjunum, sem hefur verið stór markaður fyrir bílaframleiðandann. Sala á 911 hefur verið stöðug á síðustu árum en árið 2025 seldust 13,574 911 bílar. Það eru sennilega nokkrar ástæður sem hafa haft áhrif á vinsældir Porsche 911 í Bandaríkjunum.
Sagan hófst með Max Hoffman
Saga Porsche í Bandaríkjunum hófst raunar með innflytjandanum Max Hoffman í New York á fimmta áratugnum, með forverann Porsche 356. Hoffman var markaðssnillingur og áttaði sig á því að Bandaríkjamenn elskuðu akstursíþróttir. Hann tók þátt í nokkrum kappökstrum þar sem hann burstaði keppinautum sínum. Í eitt skiptið þurfti hann að endurtaka aksturinn því enginn trúði hversu hratt hann fór. Þetta var góð kynning á evrópskum sportbíl fyrir Bandaríska neytendur
Hollywood og dægurmenningin
Seinna meir á sjöunda og áttunda áratugnum varð Porsche 911 orðinn að stöðutákni, með hjálp frá stjörnunum í Hollywood. Steve McQueen átti nokkra 911 og keyrði einn slíkan í kappaksturs myndinni Le Mans frá 1971. Þarna var orðið “kúl” að eiga og keyra um á 911. Þeir voru einnig minni og glæsilegri en amerísku kaggarnir á þeim tíma. Áratugarnir liðu hjá og er Porsche 911 enn stór hluti af dægurmenningunni og hefur komið fram í bíómyndum eins og Bad Boys (1995), Cars (2006) og Top Gun: Maverick (2024).
Hannaður fyrir hversdagsleikann
Porsche 911 var hannaður sem áreiðanlegur þýskur sportbíll sem hentar vel í innanbæjar akstur og á þjóðveginum. Hann var einnig minni en flestir sportbílar eða amerískir kaggar á fyrstu áratugunum og hentaði því betur fyrir marga. Útlit og hönnun bílsins er einnig eftir eftirminnileg. Ferry Porsche sagði á sínum tíma ,,911 er eini bíllinn sem þú getur keyrt frá safarí í Afríku alla leið til Le Mans, þaðan í leikhúsið og svo beint út á göturnar í New York.








