Það var mikið um að vera hjá Toyota í Kauptúni um síðustu helgi en þá var nýr Hilux frumsýndur. Hilux er mörgum Íslendingum að góðu kunnur enda goðsögn í flokki pallbíla. Þetta er fyrsti rafbíll Toyota sem er byggður á grind. Hinn nýi og rafknúni Hilux býður upp á sömu kosti og dísil útgáfan, góða burðar- og dráttargetu ásamt frábærum torfærueiginleikum.
Drægnin er 257 km samkvæmt WLTP staðlinum. Bíllinn hefur tvo rafmótora sem skila bílnum 196 hestöflum. Burðargeta bílsins er 715 kg og dráttargetan er 1600 kg.
Útlitið hefur verið uppfært og er hinn nýi Hilux vígalegri en áður fyrr. Framljósin eru orðin minni og grillið er lokað. Bíllinn kemur í tveimur útfærslum og heita þær LX og VX.
Á sama tíma var einnig haldin rafbílasýning hjá Toyota í Kauptúni, Reykjanesbæ og á Akureyri en á þessum stöðum var öll rafbílalína Toyota sýnd. Gestum gafst kjörið tækifæri til að bera saman ólíka bíla sem mæta fjölbreyttum þörfum, allt frá fólksbílum til sendi- og pallbíla.







