Nýr rafmagns GLC hefur bæst við í Mercedes flotann

Lestími: < 1 mín

Nýr alrafmagnaður Mercedes-Benz GLC sportjeppi var frumsýndur hjá bílaumboðinu Öskju síðustu helgi. Drægni bílsins er allt að 715 kílómetra samkvæmt WLTP-staðlinum og nýtir 800 volta hleðslukerfi sem styttir hleðslutíma verulega.

Rafmótorar skila sportjeppanum alls 489 hestöflum og hámarks togið er 800 Nm. Hann er aðeins 4,3 sekúndur úr kyrrstöðu í hundraðið. Þá býður GLC einnig upp á allt að 2.400 kg dráttargetu. Bíllinn kemur með nýja MB.OS-stýrikerfinu frá Mercedes-Benz þar sem gervigreind er nýtt til að gera aksturinn snjallari og persónulegri. Með Digital Extras-appinu tengist ökumaðurinn svo bílnum í gegnum snjallsíma og getur meðal annars fylgst með hleðslu, forstillt hitastig og nálgast upplýsingar um bílinn í rauntíma.

Staðalbúnað sem má finna er t.d. MBUX-snjallkerfi með raddstýringu, 360° myndavél, íslenskt leiðsögukerfi, glerþak með SKY CONTROL, rafdrifnar sætisstillingar með minni sem og háþróuð aksturs- og öryggiskerfi.

Mercedes-Benz fagnar jafnframt 140 árum af nýsköpun á árinu og segir þýski lúxusbílaframleiðandinn að nýr GLC marki mikilvægt skref í áframhaldandi þróun vörumerkisins.

Deila grein: