Rafmagnsöldin er hafin hjá Ferrari

Lestími: < 1 mín

Ferrari tilkynnti í fyrra að þeir væru að smíða og þróa rafmagnsbíl. Verkefnið fékk nafnið Ferrari Elettrica og var mikill spenna yfir því. Nýi rafmagnsbíllinn hefur loksins fengið nafn og er það Ferrari Luce sem þýðir ljós eða uppljómun, sem gæti vitnað í vendipunkt í sögu Ferrari þar sem þeir eru að færa sig yfir í framleiðslu rafmagnsbíla. 

Ferrari Luce hefur fjóra rafmagnsmótora

Ferrari Luce hefur fjóra rafmagnsmótora, einn við hvert hjól, sem gefur bílnum aukin afköst. Bíllinn framleiðir 1.035 hestöfl og er 2,5 sekúndur frá kyrrstöðu í hundraðið. Drægnin er í kringum 530 km og hámarkshraðinn er 310 km/klst. Rafhlaðan er 122 kWh, 800V og er 2,260 kg á þyngd.

Ferrari fór í samstarf með fyrirtæki sem kallast LoveFrom sem hjálpaði með hönnun bílsins að utan og innan. Forstjóri fyrirtækisins er Jonathan Ive, sem var hönnunarstjóri hjá Apple og hefur því mikla reynslu að hanna fyrir flott vörumerki. Bílar og símar eru hins vegar ekki sama fyrirbæri. 

Ferrari einblínir á fjölhæfni og notagildi

Ferrari einblínir á fjölhæfni og notagildi, þar sem Luce hefur pláss fyrir fimm farþega. Yfirbyggingin er einnig loftfræðilega skilvirk sem lýsir áhugaverðri hönnun bílsins. Það kom upp sú hugmynd að hanna rafmagnsbílinn í F80 stíl, þar sem vélin er fyrir miðju bílsins en bak við sætin, en ávinningurinn er ekki jafn mikill þegar kemur að rafmagnsbílum eins og bensín eða dísel bílum. 

Þetta er mikil tímaskipting í sögu bílaframleiðandans og verður spennandi að fylgjast með hvaða skref verða tekin í framtíðinni.

Deila grein: