Nýr Kia EV2 var frumsýndur hjá Öskju á dögunum. Nýi bíllinn er al rafmagnaður jepplingur, eins og nafnið gefur til kynna, og er minnsti rafbíll Kia til þessa.
Kia EV2 býður upp á hleðslugetu, tengimöguleika og akstursaðstoð sem er sambærileg við það sem finnst í stærri rafbílum. Það eru þrjár útfærslur af bílnum fáanlegar en þær eru Light, Air og Earth, sem hefur 42,2 kWh rafhlöðu og allt að 317 km drægni. EV2 Long Range er síðan væntanlegur seinna í sumar en hann er með allt að 453 km drægni.
Kia EV2 er búinn sömu háþróuðu tæknieiginleikum og stærri rafbílar Kia sem styðja við aukið öryggi og akstur. Þar má nefna þrefalt ccNC upplýsinga- og afþreyingarkerfi, OTA-uppfærslur, Kia Upgrades, akstursaðstoðarkerfi og In-Cabin Monitoring Unit.
Við hönnun bílsins voru sérhönnuð teppi og hljóðeinangrandi gler í hurðum og framrúðu sérstaklega valin fyrir bætta hljóðvist. EV2 býður einnig upp á Bold Motion Symphony sem er ný hljóðímynd sem skapar mjög góða hljóðupplifun.







