Nýr, rafmagnaður Mercedes-Benz GLB var frumsýndur hjá Öskju á dögunum. Þetta er fjölhæfur og rúmgóður jepplingur frá lúxusbílaframleiðandanum í Stuttgart. Bíllinn býður allt að 614 km drægni samkvæmt WLTP og kemur með 4MATIC fjórhjóladrifi.
Bíllinn er fáanlegur sem fimm eða sjö sæta, með góðu farangursrými og sveigjanlegum lausnum sem henta jafnt í daglegum akstri sem og í lengri ferðum.
Nýi GLB kemur vel búinn bæði hvað varðar þægindi og öryggi. Meðal staðalbúnaður er allt að 614 km drægni, 4MATIC fjórhjóladrif, LED framljós með háþróaðri ljósastýringu og bílastæðaaðstoð að framan og aftan. Einnig er bíllinn búinn MBUX snjallkerfi með snerti- og raddstýringu, íslensku leiðsögukerfi og rafdrifnum sæta stillingum með minni. Auk þess má nefna háþróuð aksturs- og öryggiskerfi, 360° myndavél, Digital Extras snjallforrit, panoramic glerþak og 800V hleðslukerfi með allt að 320 kW DC hleðslugetu.
GLB kemur með nýju MB.OS stýrikerfi og Digital Extras appinu sem tengir þig við bílinn. Þar er meðal annars hægt að fylgjast með hleðslustöð, stilla hitastig og fá leiðsögn beint í símanum.







