Breyting á reglugerð um ökuskírteini

Lestími: < 1 mín

Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra undirritaði í gær breytingu á reglugerð um ökuskírteini sem rýmkar heimildir ökumanna með almenn ökuréttindi (B-flokki). Reglugerðin heimilar nú þeim sem hafa haft B-réttindi í minnst tvö ár að aka rafbílum og bílum knúnum með óhefðbundnu eldsneyti sem vega án eftirvagns allt að 4.250 kg í stað 3.500 kg áður að því er fram kemur á vef stjórnarráðsins.

Fram til þessa hafa almenn ökuréttindi aðeins náð til bíla við vöruflutninga án eftirvagns, sem eru að hámarki 3.500 kg að heildarþyngd. Rafbílar eru á hinn bóginn oft nokkuð þyngri en sambærilegir bensín- og dísilbílar, fyrst og fremst vegna þyngdar á rafhlöðum.

Það hefur orðið til þess að rafknúnir sendibílar lenda í einhverjum tilvikum yfir þyngdarmörkum sem gera það verkum að ökumaður þurfi meira próf (C1 eða C-réttindi), þótt bílarnir væru að öðru leyti sambærilegir hefðbundnum bensín- og díselbílum.

Með breytingunni er verið að jafna stöðu rafbíla og bíla sem knúnir eru með óhefðbundnu eldsneyti í vöruflutningum. Fyrirtæki og einstaklingar geta nú nýtt sér rafknúna sendibíla til fulls án þess að þurfa að bera kostnað af ökunámi vegna meira prófs.

„Það er mikilvægt að regluverkið styðji við fyrirtæki og einstaklinga sem vilja fjárfesta í vistvænni ökutækjum. Nú geta ökumenn með almenn ökuréttindi ekið þyngri rafknúnum bílum og nýtt burðargetu þeirra til jafns við eldri og meira mengandi bíla. Þetta er því mikilvægt skref í að hvetja til orkuskipta.,“ segir Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra.

Deila grein: