Norska lögreglan hefur undirritað samninga við Volvo Car Norway AS og Bertel O. Steen AS um afhendingu á lögreglubílum fyrir norsku lögregluna á tímabilinu 2027 til 2033. Heildarvirði samninganna nemur 1,1 milljarði norskra króna eða um 14,4 milljarða íslenskar krónur. Með nýju samningunum fær lögreglan tvær bílgerðir sem munu mæta hluta af þörfum lögreglunnar fyrir eftirlitsbíla á komandi árum.
Bílarnir sem um ræðir eru af gerðinni Volvo XC60 T8 og fangabíll Mercedes-Benz Vito 124 Tourer Pro 4Matic.
Samningarnir skapa fyrirsjáanleika
„Nýju samningarnir tryggja lögreglunni aðgang að mikilvægum búnaði á tímum sem einkennast af aukinni óvissu og hröðum breytingum. Samningarnir skapa fyrirsjáanleika fyrir bæði lögregluna og birgjana út allan samningstímann,“ segir Helge Clem, forstjóri stoðþjónustu lögreglunnar.
Alls sýndu fimm bjóðendur áhuga á útboðinu. Í haust mun lögreglan auglýsa nýtt útboð fyrir aðrar gerðir eftirlitsbíla, sem munu meðal annars mæta þörfum vettvangsstjóra, hundasveitarinnar og sérsveitarinnar.







