Samkeppniseftirlitið safnar enn gögnum um hvernig olíufélögin hafa brugðist við tímabundinni lækkun stjórnvalda á virðisaukaskatti á eldsneyti og því er ekki hægt að segja með vissu hvort lækkunin hafi skilað sér að fullu til neytenda, segir forstjóri Samkeppniseftirlitsins.
Ótímabært að meta hvort olíufélög verði beitt sektum
Samkeppniseftirlitið kannar enn hvort lækkun virðisaukaskatts á eldsneyti 1. maí hafi skilað sér að fullu til neytenda. Forstjóri þess segir ótímabært að meta hvort olíufélög verði beitt sektum. Það sama á við um nýlega lækkun á heimsmarkaðsverði eftir að Bandaríkin og Íran náðu saman um friðarsamkomulag.
Í viðtali við RÚV segir Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins, að það muni að sjálfsögðu vera liður í eftirliti okkar með álagningu félaganna í tilefni af þessari lækkun á virðisaukaskatti.
Samkeppniseftirlitið má sekta olíufélög sem fara ekki að lögum
„Núna erum við í gagnaöflun, sem hefur staðið frá því að okkur var falið þetta eftirlit með þessari lækkun á virðisaukaskattinum. Við höfum lagt á félögin reglulega upplýsingagjöf og það er pínulítil tímatöf í henni þannig að það líður dálítill tími þar til við fáum staðfestar upplýsingar frá félögunum um álagningu og eldsneytisverð,“ segir Páll Gunnar í samtalinu við RÚV. Samkeppniseftirlitið má sekta olíufélög sem fara ekki að lögum um tímabundna lækkun virðisaukaskatts á eldsneyti.
Páll Gunnar er inntur eftir því hvort lækkunin hafi skilað sér til neytenda?
„Við munum gera fljótlega nánar grein fyrir því, við erum að skoða ákveðna þætti í því. Þannig að ég get ekki fullyrt um það á þessu stigi. Við erum að leita skýringa á ákveðnum atriðum,“ segir Páll. Samkeppniseftirlitið sé enn að leita skýringa á ákveðnum atriðum,“ segir Gunnar Páll við RÚV.
Skoða aðgerðir olíufélaga fyrir og eftir lækkun
„Þetta snýst auðvitað ekki bara um hvort lækkunin skilaði sér 1. maí heldur hvað gerðist í aðdragandanum og líka hvernig þessir keppinautar haga sinni samkeppni á þessu tímabili þar sem lækkunin á sér stað.“
Gagnaöflunin er langt komin og Páll segir að fyrstu upplýsingar ættu að liggja fyrir fljótlega. En hvenær eiga olíufélögin að bregðast við og á hvaða stigi er tekin ákvörðun um hvort beita eigi sektum?
„Það er ekkert tímabært að velta því fyrir sér núna. Við erum á fullu í þessari vinnu og það verður bara að fá að koma í ljós hvort það verði ástæður til að beita viðurlögunum eða öðrum aðgerðum í þessu eftirliti,“ segir Gunnar Páll.
Svigrúm til að lækka verð enn frekar
Runólfur Ólafsson framkvæmdastjóri FÍB sagði í samtali við RÚV á dögunum svigrúm til að lækka verð enn frekar.
„Við erum að sjá það í öllum nágrannalöndum okkar að eldsneyti hefur verið að lækka undanfarna daga og vikur. Þetta er reyndar mjög hverfull heimur eins og við vitum. Það er ein frétt í dag og önnur á morgun. Þannig að það hafa verið miklar sveiflur á heimsmarkaði,“ segir Runólfur.
Neytendur eiga inni frekari lækkun
„En við sjáum að það er undirliggjandi frekari lækkun núna. Þar að auki er það mjög áberandi að olíufélögin hafa síðustu árin verið að snarauka álagningu bæði á bensín og díselolíu. Þannig að neytendur eiga inni frekari lækkun eins og við höfum ítrekað lagt áherslu á,“ segir Runólfur Ólafsson framkvæmdastjóri FÍB.







