939% álag á reikning vegna kílómetragjalds af bílaleigubíl!

Lestími: < 1 mín

Félagsmaður hafði samband við skrifstofu FÍB og vildi  koma á framfæri kvörtun vegna fáránlegs álags á reikning vegna kílómetragjalds frá bílaleigunni ALP hf í Reykjavík.

Félagsmaðurinn lenti í ábyrgðartjóni með bíl sinn og fór samkvæmt ábendingu tryggingafélags með bílinn til viðgerðar hjá bílaverkstæði. Hann fékk bíl til afnota hjá verkstæðinu meðan á viðgerð stóð. Tveim dögum síðar var búið að gera við bílinn og bílaleigubílnum skilað.

Starfsmaður verkstæðisins sagði félagsmanninum að hann myndi fá reikning frá bílaleigunni, sem ætti bílinn, vegna þeirra kílómetra sem hann hefði ekið. Okkar maður hafði aðeins ekið bílnum 19 kílómetra á þessum tveim dögum sem gerir 132 krónur í ríkissjóð.

Fljótlega berst reikningur frá ALP bílaleigunni en þá er krafan komin í 1.372 krónur. Um er að ræða 939% hækkun. Skýringin er 1.240 króna þjónustugjald sem bílaleigan leggur á 132 króna kílómetragjaldið. Reyndar er rétt að taka fram að inn í þessum 1.240 krónum er 240 krónur í virðisaukaskatt.

Hvers vegna var tjónþolinn ekki rukkaður um 132 krónur þegar bílaleigubílnum var skilað til bílaverkstæðisins sem hafði milligöngu um leiguna fyrir hönd bílaleigunnar? Svona ofurálag fellur undir okur og óvandaða viðskiptahætti. Það er ekki nema von að verðbólga haldist há hér á landi ef virðuleg fyrirtæki telja í lagi að leggja 939% ofan á þá upphæð sem tjónþolinn átti að borga í ríkissjóð.

Deila grein: