Niðurstöður breskrar rannsóknar benda til þess að rafhlöður rafbíla endist mun lengur en áður var talið.
Breska fyrirtækið Generational framkvæmdi rannsóknina og fór yfir ástand rafhlaðna í um 8.000 rafbílum frá 36 mismunandi framleiðendum. Bílarnir voru bæði nýir og notaðir, allt að 12 ára. Akstursvegalengd ökutækjanna var frá núll og upp í 260.000 kílómetra.
Afkastageta yfir 95%
Niðurstöðurnar sýna að meðaltals rýmd rafhlaðnanna í þessum 8.000 bílum, sem rannsakaðir voru, er um 95%. Það er töluvert yfir 70% þröskuldinum sem ábyrgðarskilmálar bílaframleiðanda gera ráð fyrir.
Jafnvel elstu bílarnir í rannsókninni komu vel út. Í bílum sem voru frá 8 til 12 ára mældist miðgildi afkastagetu rafhlöðu um 85%. Bílarnir (8-12 ára) með bestu viðhaldssöguna voru með allt að 90% af upprunalegri rýmd.
Mikill akstur ekki endilega vandamál
Athygli vekur að mikill akstur virðist ekki hafa eins neikvæð áhrif og talið var. Drifrafhlöður bíla sem hafði verið ekið yfir 160.000 kílómetra voru með á bilinu 88–95% rýmd.
Góð meðferð, eðlilegt viðhald og þjónusta ökutækis skiptir meira máli en akstursnotkun í kílómetrum varðandi endingu rafhlaðna.
Mikilvægt fyrir markaðinn
Oliver Phillpott forstjóri Generational segir niðurstöðurnar sýna að ástand drifrafhlaðna rafbíla sé verulega umfram væntingar neytenda og jafnvel sérfræðinga. Hann bendir jafnframt á að gagnsæi um ástand rafhlaðna sé lykilatriði fyrir þróun markaðarins, sérstaklega þegar kemur að endursölu á notuðum rafbílum.
Getur aukið traust neytenda
Niðurstöðurnar eru jákvæðar og munu hafa áhrif á viðhorf neytenda til rafbíla. Ótti við dýr rafhlöðuskipti hefur hingað til haft marktæk áhrif á kauphegðun. Með betri upplýsingum um raunverulega endingu drifrafhlaðna er auðveldara að verðmeta notaða rafbíla sem aftur mun líklega örva eftirspurn á markaði.







