Styrkir til uppbyggingar hleðsluinnviða við fjölbýlishús

Lestími: 2 mín

Loftslags- og orkusjóður hefur auglýst eftir umsóknum um styrki til uppbyggingar hleðsluinnviða við fjölbýlishús. Styrkjunum er ætlað að styðja við uppbyggingu hleðsluinnviða á sameiginlegum bílastæðum fjöleignarhúsa og auðvelda húsfélögum sem standa frammi fyrir sérstaklega kostnaðarsamri uppbyggingu á slíkum innviðum að ráðast í framkvæmdir að því er fram kemur á vef stjórnarráðsins.

Liður í aðgerðum ríkisstjórnarinnar vegna hækkandi heimsmarkaðsverðs olíu

Styrkirnir eru liður í sértækum aðgerðum ríkisstjórnarinnar vegna hækkandi heimsmarkaðsverðs olíu og aukinnar óvissu á alþjóðlegum orkumörkuðum vegna stríðsátaka við Persaflóa sem kynntar voru á fréttamannafundi 10. apríl síðastliðinn.

Aðgerðirnar miða annars vegar að því að verja heimili fyrir áhrifum verðhækkana og hins vegar að því langtíma verkefni að gera sem flestum kleift að slíta sig frá dælunni og nota hreina íslenska orku í stað innflutts jarðefnaeldsneytis. Vegna hins síðarnefnda hefur Loftslags- og orkusjóður þegar auglýst eftir umsóknum um styrki til uppbyggingar hraðhleðslustöðva fyrir rafbíla um allt land með það að markmiði að loka gatinu í hraðhleðsluneti á vegum landsins.

Þá segir að styrkir vegna hleðsluinnviða við gististaði auglýstir innan skamms. Samhliða vinna stjórnvöld að breytingum sem eiga að tryggja einfaldara og samræmdara greiðslufyrirkomulag við hleðslu rafbíla.

Jafnara aðgengi að hleðsluinnviðum óháð því í hvernig húsnæði fólk býr

„Rafbílar eiga ekki bara að vera fyrir fólk sem býr í einbýlishúsum. Með því að styrkja uppsetningu hleðslustöðva í fjöleignarhúsum stuðlum við að jafnara aðgengi að hleðsluinnviðum óháð því í hvernig húsnæði fólk býr,“ segir Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra á vef stjórnarráðsins

Hraðari og réttlátari rafbílavæðing er eitt af fimm forgangsverkefnum ríkisstjórnarinnar í loftslagsmálum sem ég kynnti þann 12. september 2025. Þetta er loftslagsmál, efnahagsmál og öryggismál. Með því að skipta jarðefnaeldsneyti út fyrir hreina íslenska orku spörum við gjaldeyri upp á tugi milljarða, minnkum losun gróðurhúsalofttegunda, styrkjum enn frekar orkusjálfstæði Íslands og drögum úr berskjöldun heimila og fyrirtækja gagnvart ytri sveiflum sem við höfum enga stjórn á.

90% heimila á Íslandi eru hituð með jarðhita sem veitir okkur ómetanlegt skjól þegar heimsmarkaðsverð olíu hækkar og sveiflast vegna ytri aðstæðna sem við ráðum engu um. Þetta er staðan vegna farsælla ákvarðana fyrri kynslóða um að hitaveituvæða byggðir landsins. Nú stendur yfir sams konar umbreyting í samgöngum þar sem dýr, óhrein og innflutt orka víkur fyrir hreinni, íslenskri og hagkvæmri orku. Sú þróun mun halda áfram af fullum þunga og ekkert getur stöðvað hana.“

Opnað verður fyrir umsóknir 22. maí

Opnað verður fyrir umsóknir 22. maí og er umsóknarfrestur vegna styrkjanna til 1. október kl. 15:00. Frekari upplýsingar má finna á vef Loftslags- og orkusjóðs, sem fer með umsjón með auglýsingu og umsýslu styrkjanna.

Styrkhæf eru húsfélög fjöleignarhúsa sem eru með 8 íbúðir eða fleiri og þar sem byggingarleyfi var gefið út áður en breyting á byggingarreglugerð nr. 112/2012 tók gildi 20. júní 2018. Fjölbýlishús sem hafa þegar komið upp hleðslustöðvum á sameiginlegum bílastæðum eru ekki styrkhæf.

Styrkir eru m.a. veittir fyrir lagnaleiðir frá rafmagnstöflu að hleðsluinnviðum við sameignarstæði og fyrir stækkun, færslu eða nýja heimtaug fjölbýlishússins. Styrkupphæð getur numið allt að 5 milljónum króna á hvert verkefni, en þó aldrei meira en 50% af heildarkostnaði.

Stuðningur við uppbyggingu hleðsluinnviða við fjölbýlishús – handbók

Deila grein: