Easypark rukkar bílastæðaprósentur

Lestími: < 1 mín

Easypark leggur 15% þjónustugjald ofan á greiðslur fyrir afnot bílastæða. Fyrir þriggja tíma kvöldstund í Hörpu greiðir bíleigandi 1.575 krónur fyrir bílastæðið og 236 krónur til Easypark, þ.e. 15% til viðbótar. Samtals 1.811 krónur.

Aðgerðin í tölvukerfi Easypark er þó alveg sú sama hvort sem rukkað er fyrir klukkutíma við Bergþórugötu eða þrjá tíma í Hörpu. Semsé að skrá tímann og taka við greiðslu. Vandséð er hvers vegna eigendur bílastæða (ekki síst Reykjavíkurborg) samþykkja að Easypark fái að taka prósentur af upphæð bílastæðagjaldsins.

Hjá Parka eru þjónustugjöldin föst upphæð, 89 krónur, á meðan Easypark rukkar 15% af því sem borga þarf fyrir afnot bílastæðisins.

Easypark innheimtir þó að lágmarki 75 krónu þjónustugjald. Klukkutíma stopp á t.d. Vitatorgi kostar 190 krónur. Lágmarks þjónustugjald Easypark er þannig 39% af heildarupphæðinni. Með Parka verður 89 króna þjónustugjaldið enn hærra hlutfall, eða 47%.

Það skiptir því litlu hvort notast er við Parka eða Easypark til að borga fyrir bílastæði þangað til fer yfir 600 krónur. Allt umfram það er óhagstæðara með Easypark.

Ekkert þjónustugjald hjá Checkit eða Autopay

Þjónustugjald er ekki tekið á bílastæðum þar sem Checkit.is eða Autopay.is annast innheimtuna. Checkit.is er t.d. á Þingvöllum og við Seljalandsfoss. Autopay.is tekur við greiðslum á bílastæðum á flugvöllum Isavia og við Grósku.

Þá hefur vakið athygli að ferðamannastaðir sem notast við Checkit.is leggja ekki vangreiðslugjald á ógreidd bílastæði. Aðeins er send krafa í heimabanka fyrir þann tíma sem bílastæðið var notað, ásamt seðilgjaldi.

Deila grein: