Runólfur Ólafsson, framkvæmdastjóri Félags íslenskra bifreiðaeigenda, FÍB segir lækkun virðisaukaskatts á eldsneyti hafa að mestu skilað sér til neytenda. Ein undantekning sé þó á því, enda hafi Costco lækkað verð á dælum um 17 krónur en ekki 21 eða 22 krónur. Þetta kom fram í viðtali við Runólf í morgunþætti á Bylgjunni í morgun.
Eins og fram hefur komið lækkaði virðisaukaskattur á bensín og dísil úr 24 prósentum í 11 prósent um síðustu mánðarmót og verður það út sumarið eða til 31. ágúst samkvæmt tímabundinni heimild sem gefin var í lögum sem samþykkt voru á Alþingi fyrir helgi. Samkeppniseftirlitinu hefur verið falið að fylgjast með því að lækkunin skili sér að fullu til neytenda en eftirlitið hefur ekki verið útfært.
„Það má eiginlega segja að miðað við eðlilega verðmyndun þá hefði eldsneytisverð hjá Costco átt að vera að lækka um 21, 22 krónur en var að lækka um tæpar 17 krónur. En svo aftur á móti veit ég ekki hvernig Costco kaupir. Þeir eru, að því er best við vitum, að kaupa eldsneytið af Skeljungi og öll íslensku félögin kaupa af Equinor í Noregi,“ sagði Runólfur ennfremur á Bylgjunni í morgun.
Jákvætt innlegg af hálfu ríkisstjórnarinnar
Runólfur sagði á Bylgjunni að það hefði verið jákvætt innlegg af hálfu ríkisstjórnarinnar að lækka virðisaukaskattinn tímabundið.
,,Ég fagna því líka, sem ýmsir hafa kvartað yfir, að það séu auknar valdheimildir til Samkeppniseftirlitsins að hafa eftirlit með þessu. Og þetta er bara svona að fenginni reynslu. Við kvörtuðum yfir því um áramót þegar skattabreytingarnar miklu áttu sér stað, þegar olíugjöld og bensíngjöld voru tekin út og í staðinn kom kílómetragjald. Þá höfðu olíufélögin verið að halda verðinu svolítið háu fram að áramótum og hafði í rauninni verið hagstætt ástand á heimsmarkaði, þannig að það hefði verið tilefni til lækkunar sem ekki var verið að skila,“ sagði Runólfur Ólafsson framkvæmdastjóri FÍB.
Viðtalið við Runólf Ólafsson í heild sinni má nálgast hér.







