Gjaldskyldan heldur áfram að bólgna út um allt land

Lestími: < 1 mín

Fyrir nákvæmlega einu ári síðan rukkaði Parka fyrir afnot af 18 bílastæðum einkaaðila í Reykjavík. Núna eru þau 24 talsins. Fjölgunin er 50%.

GreenParking rukkar nú á 15 bílastæðum einkaaðila í Reykjavík. Fyrir tveimur árum var GreenParking með 7 slík stæði á sínum vegum. Fjölgunin er 100%.

Hér er aðeins verið að fjalla um bílastæði einkaaðila. Að auki hefur gjaldskylda á bílastæðum sveitarfélaga aukist töluvert, þar á meðal á Selfossi, Akureyri og í Stykkishólmi.

Ferðamannastaðurinn Gjaldskylda

Nú er rukkað fyrir bílastæði á 54 ferðamannastöðum um allt land. Í nóvember síðastliðnum var gjaldskylda á 43 slíkum. Á hálfu hári hefur þeim fjölgað um 11, eða um 25%.

Gjaldskylduvæðingin á ferðamannastöðum virðist engin takmörk sér eiga. Landeigendur taka sölumönnum Parka og Sannra landvætta fagnandi. Hver slær höndinni á móti því að fá fyrirhafnarlausar tekjur af ferðamönnum?

Deila grein: