Í heimi þar sem alþjóðlegur bílaiðnaður flýtir sér áfram inn í framtíð sem er knúin með rafmagni, stendur Akio Toyoda, stjórnarformaður Toyota, á ólíkum vegi. Margir samkeppnisaðilar hafa lofað að skipta alfarið yfir í rafbíla á næsta áratugi og vinna hörðum að ná því markmiði. Toyota hins vegar heldur sig fast við fjölþátta nálgun, samhliða því að skerpa á sinni eigin rafbílaþróun.
Einmana í löngun sinni til að varðveita brunavélar
Undanfarin ár hefur Akio Toyoda verið einn helsti talsmaður hefðbundinna bensínbíla í heiminum. Hann talaði um í viðtali fyrir stuttu að honum liði mjög einmanna í löngun sinni til að varðveita brunavélar. Annar punktur sem hann kom með var áherslan á að vernda þúsundir birgja og tæknimanna um allan heim sem tengjast framleiðslu brunavélum.
Toyoda hefur lýst yfir áhyggjum sínum yfir því að bílaiðnaðurinn einblíni eingöngu á rafbíla og vanræki aðrar tækniframþróanir, eins og vetnisbíla sem Toyota hefur verið að þróa síðustu ár.
Raunsæ nálgun Toyota á framtíð samgangna
Stefnumótandi frávik Toyota er ekki sprottið af andúð á rafbílum, heldur byggist frekar á raunsæu mati á þörfum neytenda og reiðubúningi innviða. Kostnaðurinn að reka rafmagnsbíl og aðgengi að hleðslustöðvum er mjög mismunandi eftir löndum. Breyting á innviðum sem henta rafbílum er einnig mismunandi eftir löndum. Með því að fjárfesta í fjölþættri nálgun tryggir bílaframleiðandinn að ökumenn hafi aðgengi að sjálfbærum valkostum sem henta þeirra lífsstíl og landfræðilega veruleika.
Toyota hefur lagt áherslu á yfirvegaða nálgun þegar kemur að framtíð samgangna og er þetta andstæða við aðra samkeppnisaðila í bílaiðnaðinum. Bílaframleiðandinn telur að rafbílar einir og sér geti ekki leyst allar áskoranir í flutningum og samgöngum um allan heim.
Nálgunin er bæði áhugaverð og djörf
Nálgun Akio Toyoda er bæði áhugaverð og djörf á tímum þar sem mikil áhersla er á græna orku og sjálfbærni. Stjórnarformaðurinn hugsar einnig um hagsmuni neytenda þar sem ekki allir hafa aðgengi að rafmagnsbílum sem ódýrum ferðamáta.







