Betra vegakerfi borgar sig sjálft

Lestími: 2 mín

Engin þörf er á sérstakri skattheimtu eða vegtollum til að borga uppbyggingu vegakerfisins. Úrbæturnar borga sig sjálfar og rúmlega það. Það eina sem stjórnvöld þurfa að gera er að sjá heildarmyndina og taka ákvarðanir út frá því.

Minni slysakostnaður.

Samfélagslegur kostnaður af umferðarslysum er áætlaður á bilinu 45-65 milljarðar króna á ári. Með betra og öruggara vegakerfi má lækka þennan kostnað um 20-25 milljarða króna á ári. Úrbætur borga sig því sjálfar.

Tvöföldun Reykjanesbrautar segir sitt.

Flest umferðarslysin eiga sér stað á fjölförnustu leiðunum á suðvesturhorninu. Ávinningurinn af tvöföldun Reykjanessbrautar er sá að engin banaslys hafa orðið þar, en fyrir tvöföldun voru þau eitt eða fleiri á hverju ári.

Reykjanesbraut í Hafnarfirði

Lækkun sjúkrakostnaðar.

Lækkun útgjalda sjúkrahúsa og endurhæfingarstofnana vegna umferðarslysa getur staðið undir afborgunum lána vegna öruggari þjóðvega til og frá höfuðborgarsvæðinu. Heildarútgjöld ríkissjóðs þurfa ekki að aukast um eina krónu.

Minna tjón, lægri iðgjöld.

Samfélagslegt tap einstaklinga sem lenda í umferðarslysum og fjölskyldna þeirra gæti minnkað um 5-10 milljarða króna á ári. Minni kostnaður tryggingafélaga stuðlar að lægri iðgjöldum.

Minni kostnaður við lögreglu og sjúkralið.

Minnkað álag á viðbragðsaðila með fækkun umferðarslysa dregur úr þörf þeirra fyrir framlög úr ríkissjóði.

Aukinn hagvöxtur.

Greiðar samgöngur með góðu vegakerfi stuðla að betri nýtingu innviða samfélagsins og þar af leiðandi hagvexti sem aftur skilar sér í ríkissjóð.

Bygging Dýrafjarðarganga

Dreifðari búseta.

Greiðar samgöngur á suðvesturhorninu draga úr þrýstingi á samþjöppun íbúðabyggðar á höfuðborgarsvæðinu. Þær gera einstaklingum og fjölskyldum auðveldara að velja búsetu eftir þörfum og á ódýrari svæðum í nágrenni höfuðborgarsvæðisins, til hagsbóta fyrir alla.

Ávinningur á öllum sviðum.

Heildarávinningurinn af stórbættu vegakerfi kemur fram á öllum sviðum. Framleiðni þjóðfélagsins eykst. Greiðari umferð styttir ferðatíma og dregur úr mengun. Jarðgöng víða um land sýna best hve ávinningurinn af góðum og öruggum samgöngum er mikill. Vöruflutningar verða ódýrari og þar með njóta einstaklingar jafnt og fyrirtæki góðs af. Hreyfanleiki vinnuafls og fyrirtækja eykst.

Lántaka sem borgar sig sjálf.

Lántaka vegna samgöngubóta eru einhver besta fjárfestingin sem ríkisvaldið getur tekist á hendur, auk þess að stuðla að heilbrigðum skuldabréfamarkaði.

Bjarnarfjörður á Ströndum
Deila grein: