Ný tækniþróun sem afþíðir ísinn af framrúðunni á skilvirkari hátt

Lestími: < 1 mín

Tækniþróun í bílageiranum er alltaf stöðugt að aukast. Nú hefur fyrirtæki að nafni Betterfrost þróað kerfi sem bræðir ísinn á framrúðunni mun hraðar og með töluvert minni orkunotkun en hefðbundið miðstöðvarkerfi (HVAC). Þessi tækni er talin geta haft áhrif á þróun rafbíla, sérstaklega í köldu loftslagi, með orkusparnaði.

Betterfrost Technologies er kanadískt nýsköpunarfyrirtæki sem sérhæfir sig í orkusparandi tækni til að afþíða og eyða móðu af rúðum bifreiða. Fyrirtækið var stofnað árið 2015 en hugmyndin átti sér stað á Dartmouth Ice tilraunastofunni. Hugmyndin er því búin að vera lengi í þróun.

Hvernig virkar þessi tækni?

Hefðbundin miðstöðvarkerfi blæs heitu lofti á framrúðuna til að bræða ísinn, sem tekur oft langan tíma og er orkufrekt. Betterfrost notar svokallaða púls-tækni (e. Pulsed Electro-Thermal De-icing). Kerfið sendir kraftmikla púlsa og í stað þess að afþíða allan ísinn, þá bráðnar aðeins örþunnt lag (0,1 mm) þar sem ísinn snertir glerið. Þegar tengslin á milli klakans og yfirborðsins rofnar þá rennur ísinn niður af rúðunni. Í stað þess að bíða í meira en 5 mínútur eftir að ísinn bráðnar þá tekur þessi aðferð aðeins 60-90 sekúndur. 

Ekki nóg með að tæknin er þægileg þá sparar hún einnig mikla orku. Orkusparnaðurinn fylgir þeirri hugmynd að í raun þarf einungis að afþíða ísinn sem snertir yfirborðið í stað þess að afþíða allan ísinn á rúðunni. Þessi þróun mun hjálpa rafknúnum ökutækjum að eyða ekki jafn miklu rafmagn í afþíðingu. Þetta gerir það að verkum að drægnin mun þá aukast.

Tæknin er enn ekki komin í almennar bifreiðar og eru prófanir ennþá í gangi. Þessi tækniþróun myndi henta okkur Íslendingum vel og spara okkur ágætis tíma.

Deila grein: