Nýr Volvo jeppi með 810 km drægni

Lestími: < 1 mín

Volvo EX60 er nýr og alrafmagnaður jeppi í stærsta rafbílaflokknum sem var kynntur á heimsvísu á dögunum. EX60 kemst allt að 810 kílómetra á einni hleðslu í fjórhjóladrifinni útfærslu. Það gerir hann ekki aðeins að rafbílnum með lengstu drægni sem Volvo Cars hefur smíðað til þessa, heldur stenst hann einnig samanburð við nýjustu keppinauta í þessum stærðarðflokki. Þá er hleðsluhraðinn áhugaverður en hægt er að bæta við allt að 340 km drægni á aðeins tíu mínútum við 400 kW hraðhleðslu.

EX60 er byggður á SPA3, nýjum rafbílagrunni Volvo Cars, og knúinn af HuginCore, kjarnakerfi fyrirtækisins. Bíllinn er búinn Cell-to-Body tækni, nýrri kynslóð rafmótora, nýrri rafhlöðuhönnun og mega-casting sem stuðla öll að meiri orkunýtni, lengri drægni og minni þyngd. 

EX60 er snjallasti Volvo-bíllinn til þessa

EX60 er snjallasti Volvo-bíllinn til þessa og fullur af háþróaðri tækni. Hann er knúinn af nýjustu útgáfu HuginCore, sem gerir bílnum kleift að hugsa, vinna úr upplýsingum og bregðast við. Kerfið endurspeglar nálgun Volvo Cars að mannmiðaðri tækni, þar sem innanhússþróun og samstarf við tæknifyrirtæki á borð við Google, NVIDIA og Qualcomm fara saman.

EX60 er fyrsti Volvo-bíllinn með Gemini, nýjum gervigreindar aðstoðarmanni frá Google.

Deila grein: