Með nýju útgáfunni af MG4 verður MG fyrsti bílaframleiðandinn til að nota fastkjarnarafhlöður í fjöldaframleiðslu.
Nýi MG4 kemur markað í Kína í næsta mánuði útbúinn fastkjarnarafhlöðu. Flestir töldu að þróun fastkjarnarafhlaðna til fjöldaframleiðslu ætti mun lengra í land. Það verður spennandi að sjá hvernig nýju rafhlöðurnar virka.
Sagt var frá því á vef Electrek (electrek.co) í vikunni að nýi MG4 verði búinn drifrafhlöðu sem notar fastkjarnatækni.
Nýja rafhlaðan, sem QinTao Energy framleiðir, inniheldur aðeins fimm prósent fljótandi raflausn, segir vörumerkjastjórinn Chen Cui.
Þessi blanda af fastkjarnarafhlöðu er sögð skila allt að 537 km drægni miðað við kínverska CLTC akstursstaðalinn og með orkuþéttleika upp á 180 wattstundir á kílógramm, Wh/kg. Blade- eða blaðrafhlaðan í BYD er í dag sögð hafa að hafa um 160 Wh/kg.
Samkvæmt MG á nýi MG4 að vera með 70 kWh rafhlöðupakka, 161 hestafl og afturhjóladrifinn.
Samkvæmt vef NAF, systursamtaka FÍB í Noregi, er gert ráð fyrir að nýi MG4 muni keppa í verði við Byd Dolphin, sem kostar í Noregi frá 299.900 norskar krónur eða um 3,6 milljónir íslenskra króna.



Hvað er fastkjarnarafhlaða?
Fastkjarnarafhlaða eða „solid-state“ er rafhlaða sem notar fast efni í raflausninni til jónleiðni á milli rafskautanna í stað fljótandi eða seigfljótandi efnis. Fastkjarnarafhlaða býður fræðilega upp á meiri orkuþéttleika en hefðbundnar liþíumjóna- eða liþíumfjölliðarafhlöður og þar með lengri akstursdrægni. Það tekur skemmri tíma að hlaða fastkjarnarafhlöðu þar sem hún hefur meiri orkuþéttni. Fastkjarnarafhlaða endist lengur og á að duga vel eðlilegan endingartíma ökutækja. Að auki eru þær léttari sem dregur úr þyngd rafbíla.
Í meðfylgjandi myndbandi er farið nánar yfir þá tækni sem býr að baki fastkjarnarafhlöðunnar.