Ný umferðarljós tekin í notkun á Akureyri

Lestími: < 1 mín

Ný umferðarljós við gatnamót Drottningarbrautar og Austurbrúar voru tekin í notkun nú í vikunni.

Ljósin eru umferðarstýrð og stillt þannig að grænt ljós er venjulega fyrir umferð um Drottningarbrautina. Þegar bílar koma frá Austurbrú eða gangandi vegfarendur ýta á gangbrautartakka, skiptir kerfið yfir á grænt ljós fyrir þá eftir stutta bið.

Markmið með uppsetningu ljósanna er að auka umferðaröryggi á svæðinu og bæta aðstæður fyrir gangandi vegfarendur.

Deila grein: