Opnað fyrir umferð um Breið­holts­braut Opnað fyrir umferð um Breið­holts­braut

Opnað fyrir umferð um Breið­holts­braut

Lestími: < 1 mín

Opnað var fyrir umferð um Breiðholtsbraut, yfir ný undirgöng til móts við Völvufell um helgina. Umferðinni hefur verið beint um hjáleið frá því framkvæmdir við undirgöngin hófust í apríl 2024.

Unnið er að breikkun Breiðholtsbrautar í tengslum við verkið Arnarnesvegur (411), Rjúpnavegur – Breiðholtsbraut. Af þeim sökum þurfti að byggja ný og breiðari undirgöng en gömlu undirgöngin voru lögð af og ný byggð aðeins austar en þau eldri að því er fram kemur í tilkynningu frá Vegagerðinni.Nýju undirgöngin verða þó ekki tilbúin fyrr en í vor þar sem ýmiss frágangur er eftir.

Framkvæmdir við Arnarnesveg hófust í byrjun september 2023. Auk 3. áfanga Arnarnesvegar er einnig innifalið í verkinu breikkun Breiðholtsbrautar frá Jaðarseli að Elliðaám, lagning stofnlagnar hitaveitu Suðuræðar II meðfram Breiðholtsbraut frá Völvufelli að Elliðaám, gerð göngu- og hjólastíga og bygging nýrrar göngu- og hjólabrúar yfir Elliðaár við Dimmu. Áætluð verklok eru haustið 2026.

Framkvæmdirnar heyra undir Samgöngusáttmála ríkisins og sex sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu en í honum felst m.a. metnaðarfull uppbygging á samgönguinnviðum og almenningssamgöngum á höfuðborgarsvæðinu til ársins 2040.

Deila grein: