Sumardekkjakönnun 2025 aðgengileg félagsmönnum á heimasíðu FÍB Sumardekkjakönnun 2025 aðgengileg félagsmönnum á heimasíðu FÍB

Sumardekkjakönnun 2025 aðgengileg félagsmönnum á heimasíðu FÍB

Lestími: < 1 mín

Eins og mörg undanfarin ár hefur Motor, félagsblað norskra bifreiðaeigenda(NAF), veg og vanda af sumardekkjakönnuninni 2025. Prófunin fór fram í byrjun nóvember 2024 á braut fyrir utan Madríd á Spáni. Sumardekkjakönnun 2025 er nú aðgengileg félagsmönnum á heimasíðu FÍB.

Veðrið var óvenjulega kalt en í vikunni áður dundu náttúruhamfarir á Valencia og nágrenni, með hitastig um tíu gráður sem svara til skandinavísks haust- og vorhitastigs.

Allar prófanir hófust og luku með akstri á viðmiðunardekkjum, sem einnig voru keyrð milli umferða prófunardekkjanna þegar þess var þörf. Allar niðurstöður voru síðan leiðréttar miðað við hvernig árangur viðmiðunardekkjanna varð fyrir áhrifum af veður- og hitabreytingum. Öll prófin voru framkvæmd með Kia EV6.

Í sumardekkjaprófun þessa árs einbeittu sérfræðingarnir sér að stærðinni 235/55 R19. Hún er vinsæl fyrir sportjeppa og er á mörgum vinsælustu bílategundunum. Rafmagnsbíllinn Kia EV6 með stóru rafhlöðunni varð fyrir valinu sem prófunarbíll.

Dekkin sem notuð voru í könnuninni voru eftirtalin:

– Continental PremiumContact7

– Goodyear Eagle F1 Asymmetric 6

– Hifly Vigorous HP801

– Michelin Pilot Sport 4 SUV

– Nokian Hakka Black 3-Pirelli Scorpion

– Pirelli Scorpion

– Joker 1: Volkswagen-aðlöguð hagkvæmnidekk

– Joker 2: Volvo-aðlöguð hagkvæmnidekk

Michelin Pilot Sport 4 SUVog Nokian Hakka Black 3 Silentdrive voru sigurvegarar að þessu sinni, hnífjöfn með 86 stig. Pirelli Scorpionog kom í þriðja sætinu en önnur dekk voru nokkuð síðri.

Deila grein: