Flutningaskip á vegum BYD í höfn í Brasilíu.

Kínverskir rafbílar flæða inn á brasilíska markaðinn

Lestími: < 1 mín

BYD, stærsti framleiðandi Kína á raf- og tengiltvinnbílum, býður brasilískum bílakaupendum tiltölulega hagstæðar lausnir á markaði þar sem rafbílanotkun er enn ekki langt komin. Embættismenn í brasilískum bílaiðnaði og leiðtogar verkalýðsfélaga óttast að mikill innflutningur bíla frá BYD og öðrum kínverskum bílaframleiðendum muni draga úr innlendri bílaframleiðslu og skaða störf.

BYD hefur notað vaxandi flota fraktskipa til að flýta fyrir alþjóðlegri útrás sinni, þar sem Brasilía er orðin helsta markmið þeirra. Sendingin í lok maí var sú fjórða af skipum kínverska bílaframleiðandans til að leggja að bryggju í Brasilíu þetta árið, alls um 22.000 bílar, samkvæmt útreikningum Reuters fréttastofunnar.

Innflutningur mun aukast um 40% á þessu ári

BYD, stærsti framleiðandi raf- og tengiltvinnbíla í heimi, er stærsta kínverska vörumerkið sem er að sækja fram í Brasilíu. Búist er við að innflutningur á bílum framleiddum í Kína muni aukast um næstum 40% á þessu ári, í um 200.000 bíla, samkvæmt helstu bílasamtökum Brasilíu. Það myndi nema um 8% af heildarskráningum fólksbíla.

Árið 2015 afnam Brasilía tolla á framleiðendur eins og BYD til að örva innleiðingu rafbíla, en í fyrra kynnti hún aftur 10% toll á rafbíla til að hvetja til fjárfestingar í innlendum bílaiðnaði. Gert er ráð fyrir að tollurinn hækki á sex mánaða fresti áður en hann nær 35% árið 2026.

BYD og önnur kínversk fyrirtæki nýta sér einnig stefnu í Brasilíu sem leyfir þeim að flytja inn tollfrjálst allt að 169 milljónir dollara fyrir tengiltvinnbíla sem eru fluttir inn fyrir júlí 2025 og 226 milljónir dollara fyrir rafhlöðubíla. Það hvetur til að flýta fyrir bílasendingum til að nýta sér tollfrjálsa kvóta að fullu áður en þeir renna út, sögðu sérfræðingar.

Deila grein: