Nýi rafmagns pallbíllinn Musso EV frá KGM hefur verið kynntur hjá Bílabúð Benna. Þessi nýi pallbíll sameinar rafmagnsdrif og praktískt notagildi sem pallbíll býður upp á.
Bíllinn er í boði bæði sem framhjóla- og fjórhjóladrifinn. Drægnin á framhjóladrifsbílnum er allt að 420 km í blönduðum akstri og á fjórhjóladrifsbílnum er allt að 379 km í blönduðum akstri.
Rafhlaðan skilar framhjóladrifna bílnum 207 hestöflum
Bíllinn notar 80,6 kWh rafhlöðu og hentar vel þeim fyrirtækjum sem vilja huga að umhverfisvernd en þurfa á pallbíla eiginleikum að halda. Rafhlaðan skilar framhjóladrifna bílnum 207 hestöflum. Togið er allt að 339 Nm og er 9,1 sekúndu frá kyrrstöðu í hundrað. Rafhlaðan skilar fjórhjóladrifna bílnum 234 hestöflum. Togið er allt að 678 Nm og hröðunin úr kyrrstöðu í hundrað er 7,9 sekúndur.
Staðalbúnaðurinn í bílnum er fjölbreyttur
Musso EV er hannaður til að mæta þörfum bæði í daglegum verkefnum og skemmtana akstri. Hann hefur burðargetu upp á 500 kg, dráttargetu allt að 1.800 kg og rúmgóðan pall fyrir verkfæri, farangur eða annað sem þarf að flytja. Innra rýmið býður upp á notendavæna og nútímalega hönnun, með góðu plássi fyrir farþega og skjákerfi sem auðveldar stjórn upplýsinga og afþreyingar. Staðalbúnaðurinn í bílnum er fjölbreyttur og nær yfir bæði öryggisbúnað og þæginda kerfi sem gera aksturinn þægilegan og öruggan.







