Nýr Kia EV5 mættur á íslenskan markað

Lestími: < 1 mín

Nýr Kia EV5 er mættur á íslenskan markað, en hann var frumsýndur á dögunum hjá bílaumboðinu Öskju. Bíllinn er með allt að 530 km drægni samkvæmt WLTP-staðli. Hann kemur framhjóladrifinn til að byrja með en er væntanlegur með fjórhjóladrifi. 

Bíllinn er útbúinn nýjasta ccNC leiðsögukerfi Kia og inniheldur m.a. Þrískiptan Panoramic Wide Display skjá. Þar sameinast 12,3” mælaborð, 12” margmiðlunarskjár og 5,3” skjár sem hægt er að stilla hitastig og loftræstingu í bílnum.

EV5 er útbúinn háþróaðri aflrás og 84,1 kW rafhlöðu sem skilar bílnum 218 hestöflum og bíllinn hefur 310 Nm hámarkstog.

Hægt að velja um þrjár útfærslur

Hægt er að velja þrjár útfærslur af EV5. Air, Earth og GT-Line. GT-Line verður fjórhjóladrifinn og aflið verður yfir 300 hestöfl. EV5 kemur einnig með Vehicle to Load tækni (V2L) sem gerir bílnum kleift að hlaða önnur tæki, eins og rafmagnshlaupahjól

Farþegarýmið kemur vel til móts við praktískar þarfir. Aftursætin má leggja alveg niður og þannig hámarka farangursrýmið, sem nær allt að tveggja metra lengd. Aðrir skipulagseiginleikar eins og skúffulaga geymslurými í miðjustokki, gera EV5 tilvalinn fyrir bæði borgarakstur og lengri ferðalög.

Deila grein: