Volkswagen ID.3 fær nýja uppfærslu og nýtt nafn

Lestími: < 1 mín

Volkswagen hafa tilkynnt að ID.3 fær nýtt nafn og nýja uppfærslu. Thomas Schäfer, Forstjóri Volkswagen, hefur talað opinberlega um að endurvekja klassísk nöfn eins og Polo og Golf fyrir rafmagnsbílana. Þar sem margir þekkja þessi nöfn, á þetta að auðvelda viðskiptavinum að átta sig betur á vöruúrvali merkisins í framtíðinni.

ID.2 hugmyndabíllinn mun fá nafnið ID. Polo. Þá hlítur ID.3 að fá nafnið Golf, er það ekki? Sérstaklega þar sem þeir eru í svipuðum stærðarflokki. Nei, nýja nafnið verður ekki Golf, heldur ID.3 Neo. Bílaframleiðandinn stefnir á að gefa rafmagnaða útfærslu af Golf, hvernig sem hún mun verða.

ID.3 Neo býður upp á fjölda nýjunga sem gerir akstur þægilegri og skemmtilegri. Hugbúnaðurinn hefur verið uppfærður og stafræn tækni sameinar hagnýta kosti eins og hömlun þegar stigið er af inngjöfinni (e. One-pedal driving), vehicle-to-load (V2L) og stafrænan lykil sem valbúnað. Fleiri áþreifanlegir takkar fylgja með bílnum, sumir eflaust fagna því. 

ID.3 Neo verður frumsýndur um miðjan apríl og munu fleiri upplýsingar koma þá.

Deila grein: