Virðisaukaskattur á eldsneyti lækkar tímabundið

Lestími: < 1 mín

Ríkisstjórnin hefur samþykkt að lækka virðisaukaskatt á eldsneyti tímabundið af dælu úr 24 prósentum í 11 prósent. Tímabundið lagaákvæði mun skylda söluaðila til að skila verðlækkun að fullu til neytenda og fela Samkeppniseftirlitinu að vakta að það sé gert.

Stjórnvöld vilja leggja sitt af mörkum

Þetta er hluti aðgerða gegn verðbólgu, sem formenn stjórnarflokkanna kynntu á blaðamannafundi í morgun. Aðgerðir stjórnvalda eru tímabundnar á meðan mikil óvissa er um þróun mála sem gefur stjórnvöldum færi á að móta langtímaaðgerðir til að bregðast við breyttri stöðu. Með aðgerðunum vilja stjórnvöld leggja sitt af mörkum og setja fordæmi fyrir atvinnulífið til að stemma stigu við verðhækkunum að því er fram kemur í tilkynningu stjórnvalda.

Fjölga á hleðslustöðum um land allt. Með 500 milljóna átaki strax í sumar til að fjölga hleðslustöðvum við fjölbýlishús og gististaði og „loka hleðslugatinu“ hringinn í kringum landið.

Lækkun virðisaukaskatts á dælu og vöktun á verðlagningu lagt fram á Alþingi í næstu viku

Gert sé ráð fyrir að aðgerðirnar taki gildi 1. maí og renni út 31. ágúst á þessu ári. Lagafrumvarp um lækkun virðisaukaskatts á dælu og vöktun á verðlagningu verði lagt fram á Alþingi í næstu viku. Fjölgun hleðslustöðva verði styrkt með framlögum úr loftslags- og orkusjóði, sem verði kynnt á næstu dögum.

FÍB hvatti stjórnvöld til aðgerða

Runólfur Ólafsson, framkvæmdastjóri Félags íslenskra bifreiðaeigenda, FÍB, hvatti á dögunum stjórnvöld í Kastljósi á RÚV til að grípa inn í miklar verðhækkanir líkt og aðrar þjóðir hafa gert undanfarið. Runólfur sagði ljóst að stjórnvöld yrðu að koma til móts við heimilin og fyrirtækin í landinu vegna hækkandi eldsneytisverðs. Það hefur nú orðið raunin.

Deila grein: