Mikill samdráttur í umferð á Hring­vegi í mars

Lestími: < 1 mín

Umferðin á Hringvegi í mars mánuði dróst saman um heil 10,6 prósent frá sama mánuði fyrir ári. Þetta er mjög mikill samdráttur og hefur ekki orðið jafn mikill í venjubundnu árferði. Hugsanlega spilar veðrið í mars inn í eða aðrar breytur einsog minnkandi umsvif, breytingar á bensín verði og km-gjald að því er fram kemur í tölum frá Vegagerðinni.

Milli mánaða 2024 og 2025
Mikill samdráttur var í umferðinni yfir 16 lykilteljara á Hringvegi, í liðnum mánuði, sé hún borin saman við sama mánuð á síðasta ári, en samdrátturinn mældist 10,6%, sem hefur ekki áður gerst í venjubundnu árferði, frá því að þessar mælingar hófust árið 2005.  Leita þarf aftur til Covid-ársins 2020 og bankahrunsáranna til að finna meiri samrátt milli mars mánaða. 

Það má hafa í huga hvort veðrið í nýliðnum mars hafi verið óvenju slæmt og það skýri þennan mun, að fullu, eða er þessi mikli samdráttur sambland fleiri atriða eins og hækkandi olíuverðs (vegna stríðsátaka í Íran) samhliða nýálögðu km-gjaldi, hækkandi vöxtum og minni hagvexti. En Vegagerðin hefur margoft bent á tengsl milli hagvaxtar og umferðar.

Umferð dróst mikið saman á öllum  landssvæðum, en mest um teljara sem eru á höfuðborgarsvæði og í grennd við höfuðborgarsvæðið eða 10,9%.  Minnst dróst umferð saman yfir teljara á Suðurlandi eða um 8,6%.

Af einstaka mælistöðum dróst umferðin mest saman yfir teljara á Mývatnsöræfum eða um 27,6%, en ekki þar langt á eftir kom teljarasnið á Geithálsi með 25,6% samdrátt. Þá má geta þess að umferð um Geithálssniðið er um 35 sinnum meiri en um Mývatnsöræfi.

Deila grein: