Vitundarvakning hafin á hættunni að nota farsíma og snjalltæki í akstri

Lestími: 2 mín

Samgöngustofa og Sjóvá hófu í vikunni nýja vitundarvakningu um hættuna á því að vera „bara aðeins“ að senda stutt skilaboð meðan á akstri stendur. Með herferðinni vilja þau vekja athygli á því að þó svo að fólk líti aðeins í stutta stund geti það haft afar alvarlegar afleiðingar. 

Notkun farsíma og snjalltækja í akstri hefur aukist undanfarin ár. Á fjórtánda hundrað ökumenn voru kærðir fyrir þessi umferðarlagabrot hér á landi í fyrra. Lögreglan segir þessi umferðarlagabrot hafa færst í aukana.

Farsímanotkun undir stýri hefur aukist á milli ára

Tölur frá Samgöngustofu frá 2025 sýna að farsímanotkun undir stýri hafi aukist á milli ára. Samkvæmt könnuninni segjast 39,4 prósent ökumanna lesa skilaboð við akstur og 31,1 prósent skrifa skilaboð. Það sé aukning frá árinu á undan og áhugavert í ljósi þess að í sömu könnun komi fram að 96 prósent telji hættulegt að skoða skilaboð undir stýri.

23 sinnum líklegra til að lenda í umferðarslysi

Í tilkynningu um átakið kemur jafnframt fram að rannsóknir sýni að fólk sé allt að 23 sinnum líklegra til að lenda í umferðarslysi þegar það les eða skrifar skilaboð við akstur og talið sé að allt að fjórðung umferðarslysa megi rekja til farsímanotkunar. Þó svo að fólki finnist það aka hægt á til dæmis 40 kílómetra hraða fari bíllinn samt um 56 metra áfram á þeim fimm sekúndum sem það kannski tekur sér í að skrifa eða lesa stutt skilaboð.

Samkvæmt 57. grein umferðarlaga er ökumanni óheimilt að nota farsíma, snjalltæki eða önnur raftæki sem geta truflað aksturinn án handfrjáls búnaðar. Sektin er fjörutíu þúsund krónur og einn punktur í ökuferilsskrá.

SKJÁHRIF – GÓÐ RÁÐ

  • Settu símann á akstursstillingu (Driving Focus / Driving Mode) til að hafa augun á veginum og halda einbeitingu við aksturinn.
  • Láttu farþega (aðstoðarbílstjóra) um að svara í símann, lesa skilaboð og annað sem síminn kallar eftir.
  • Taktu hljóðið af símanum og settu hann í hanskahólfið.
  • Veldu áfangastaðinn í leiðsögukerfinu áður en þú leggur af stað svo þú þurfir ekki að fikta í tækinu á meðan á akstri stendur.
  • Eigðu gæðastund í bíltúrnum, veldu þér tónlist eða hljóðbók í símanum og settu í gang áður en þú leggur af stað.
Deila grein: