Á heimsvísu varð veruleg breyting í bílasölu árið 2025. Eftir að rafbíllinn Tesla Model Y hafði lagt undir sig heiminn og verið söluhæsti bíllinn, snerist dæmið við árið 2025 þar sem kaupendur leituðu mikið í tvinnbíla (hybrid). Söluhæsti bíllinn á heimsvísu árið 2025 var Toyota RAV4 en alls seldust rúmlega ein milljón eintaka af þessari bílategund.
Tesla Model Y niður í þriðja sætið
Greiningaraðilar og sölutölur sýna að Toyota RAV4 tók efsta sætið og í kjölfarið fylgdi önnur goðsögn frá sama framleiðanda. Toyota Corolla hélt öðru sætinu eins og oft áður. Tesla Model Y hrapaðií þriðja sætið yfir heildarmarkaðinn á heimsvísu, en lenti þó í efsta sæti yfir hreina rafbíla.
Það er áhugavert að bera þetta saman við þróunina hér heima á Íslandi árið 2025, þar sem rafbílavæðingin er miklu lengra komin en víðast hvar annars staðar. Á Íslandi var Tesla Model Y enn sem fyrr söluhæsta einstaka bílmódelið árið 2025. Sem bílamerki í heild sinni á Íslandi náði Kia hins vegar mestu markaðshlutdeildinni 13,8%
Á heimsvísu réðu breyttar áherslur kaupenda úrslitum árið 2025, þar sem fólk sem var hikandi við innviði rafbíla valdi frekar þægindi og drægni tvinnbíla eins og RAV4.







