Timburklætt vegrið sett upp við útsýnispall gegnt Akureyri

Lestími: < 1 mín

Rekverk á Akureyri setti á dögunum upp timburklætt vegrið á útsýnispall gegnt Akureyri. Vegriðið kemur frá franska fyrirtækinu Tertu og uppfyllir Evrópustaðalinn EN 1317. Vegriðið kemur mjög vel út þar sem galvaniserað járn á síður við.

,,Við erum búnir að berjast fyrir því að koma þessum á markað í 20 ár. Það var loksins nú sem svæðastjórar Vegagerðarinnar tóku ákvörðun að setja þetta upp sem var sérlega ánægjulegt,“ sagði Davíð Reynisson hjá Rekverk í samtali við FÍB-fréttir.

Davíð sagði að franska fyrirtækið hefði mikla reynslu á þessu sviði en en saga þess spannar yfir 40 ár. Þeir planta sjálfir í sínum eigin skógi og eru því algjörlega sjálfbærir.

,,Þetta vegrið uppfyllir allar kröfur og er með svonefndan árekstraenda sem krafist er í dag í þessum málum,“ sagði Davíð Reynisson.

Rekverk ehf. var stofnað þann 30. apríl 2007. Fyrirtækið hefur sérhæft sig í uppsetningu vegriða, innflutningi og sölu á vegriðsefni ásamt annarri þjónustu við veghaldara og verktaka.  Rekverk ehf er eina fyrirtækið á Íslandi sem hefur eingöngu sérhæft sig í þessari starfsemi.

Deila grein: