Sektarhætta við opinberar hleðslustöðvar í Danmörku

Lestími: < 1 mín

Nýr dómur í Danmörku staðfestir að rafbílstjórar eiga á hættu að fá 510 danskar krónu sekt ef bíllinn er ekki í virkri hleðslu þegar honum er lagt við opinbera hleðslustöð, jafnvel þótt hann sé tengdur. Sektin nemur um tíu þúsund íslenskum krónum.

Héraðsdómurinn í bænum Randers dæmdi gegn ökumanni þar sem hleðslan hafði stöðvast óvænt, t.d. vegna tæknilegrar villu. Á þessu er breytt túlkun því áður sagði samgönguráðuneytið að tenging ein og sér dygði en dómurinn hunsar þá yfirlýsingu.

FDM krefst þess að ráðuneytið leysi málið fljótt

Félag danskra ökumanna, FDM, varar rafbílstjóra við því að nota opinber stæði merkt „Aðeins fyrir hleðslu rafbíla“ þar sem ökumenn geta ekki tryggt að hleðslan stöðvist ekki óvænt. FDM telur þetta vinna gegn orkuskiptum og snjallhleðslulausnum og krefst þess að ráðuneytið leysi málið fljótt.

Deila grein: