Bjóða Geely að framleiða bíla í evrópskum verksmiðjum Volvo

Lestími: < 1 mín

Håkan Samuelsson, forstjóri Volvo, hefur boðið kínverskum samstarfsaðilum sínum hjá Geely-samsteypunni að framleiða bíla í evrópskum verksmiðjum Volvo. Ástæðan er hækkandi tollamúrar gegn Kína og mikil umframgeta í bílaiðnaðinum. Li Shufu, stofnandi Geely, hefur jafnframt gefið út að samsteypan vilji frekar nýta núverandi verksmiðjur en að byggja nýjar. Samuelsson telur einnig að mörg bílamerki samsteypunnar geti deilt fleiri varahlutum.

„Við getum án vandræða notað mun fleiri sameiginlega íhluti og einingar í bílana okkar, án þess að það stefni vörumerkinu okkar í hættu á nokkurn hátt,“ segir hann í samtali við Financial Times.

Nánara samstarf geti skilað stærðarhagkvæmni

Samkvæmt Financial Times gæti Geely nýtt lausa afkastagetu í verksmiðjum Volvo í Svíþjóð, Belgíu og Slóvakíu til að smíða bíla fyrir Evrópumarkað. Håkan Samuelsson telur að nánara samstarf geti skilað stærðarhagkvæmni án þess að merkin glati sérkennum sínum.

Þessi stefna ögrar kínverska keppinautnum BYD, sem er að byggja nýjar verksmiðjur á erlendum mörkuðum. Geely á meðal annars Volvo Cars, Polestar, Lynk & Co og Zeekr, og hefur á undanförnum árum unnið að nánari samþættingu á milli bílamerkja samsteypunnar.

Deila grein: