Nýskráningum fólksbíla í ESB, EFTA-löndunum og Bretlandi fjölgaði um 4,5% og urðu 5,8 milljónir bíla á tímabilinu janúar til maí 2026 í samanburði við sama tímabil í fyrra samkvæmt tölum frá Samtökum evrópskra bifreiðaframleiðenda, ACEA.
Markaðurinn sýnir því áframhaldandi vöxt þrátt fyrir ákveðna stjórmála óvissu og efnahagslegar áskoranir að sögn samtaka bílaframleiðenda. Í maímánuði einum sér fjölgaði skráningum um 3,6% miðað við sama mánuð í fyrra.
Sala á bensín- og dísilbílum áfram að dragast saman
Rafvæðingin heldur áfram að setja svip sinn á markaðinn. Hreinir rafbílar styrktu stöðu sína á fyrstu fimm mánuðum ársins, á meðan hybrid-bílar eru enn vinsælasti aflgjafinn meðal evrópskra bílakaupenda. Á sama tíma heldur sala á bensín- og dísilbílum áfram að dragast saman.
Þýska Volkswagen-samsteypan gaf örlítið eftir í sölunni í maímánuði en er engu að síður stærst með 300.000 nýja bíla í mánuðinum og 26,1% markaðshlutdeild. Stellantis samsteypan dróst saman um 2,3% og BMW jók söluna um 4,1% í maí.
Risastökk Leapmotor
Mikil aukning hefur átt sér stað hjá kínverksum bílaframleiðendum. BYD jók nýskráningar sínar um 136,6%, á meðan Leapmotor óx um 465,1% miðað við maí í fyrra. Þetta risastökk Leapmotor hefur vakið mikla athygli. Almennt séð fá bílarnir mikið lof fyrir frábært hlutfall á milli verðs og gæða, mikið pláss og ríkulegan staðalbúnað. Helstu kvartanirnar snúa að aksturseiginleikum og dálítið pirrandi tæknilausnum eins og fram kemur í umsögnum um bílinn.







