Sænsk-kínverski rafbíllinn Polestar verður bannaður í Bandaríkjunum frá og með árgerð 2020. Ákvörðunin tengist nýjum öryggisreglum stjórnvalda vegna tengsla fyrirtækisins við Kína.
Bandaríska viðskiptaráðuneytið (Bureau of Industry and Security, BIS) hefur synjað Polestar um leyfi til að selja nýja bíla í landinu frá og með árgerð 2027. Ákvörðunin er sögð tengjast nýjum reglum Bandaríkjanna um nettengda bíla (Connected Vehicles Rule), en tilgangur þeirra er að vernda þjóðaröryggi og netöryggi með því að takmarka sölu á tækni og bílum sem eiga rætur að rekja til Kína og Rússlands.

Þetta sýnir hversu hratt bílaiðnaðurinn er að skiptast upp í svæðisbundnar blokkir. Höfuðstöðvar Polestar eru í Gautaborg í Svíþjóð og bíllinn er markaðssettur sem sænskt merki. Polestar er í eigu kínverska bílarisans Geely. Eeignarhaldið og kínverskur tæknibúnaður réttlætir væntanlegt sölubann á vörumerkið að mati bandaríska viðskiptaráðuneytisins.
Ekki sölubann á Volvo
Polestar er systurfyrirtæki Volvo Cars og bæði fyrirtækin eru í meirihlutaeigu Geely. Volvo var í svipaðri stöðu varðandi mögulegt sölubann á bandaríska markaðnum en tókst að fá samþykki viðskiptaráðuneytisins bandarískra í síðasta mánuði varðandi áframhaldandi sölu á Volvo á Bandaríkjamarkaði.
Framleiðsla í Bandaríkjunum dugar ekki til
Það er athyglisvert varðandi viðskiptabannið að Polestar hefur þegar hafið framleiðslu á rafjeppanum Polestar 3 í Suður-Karólínu í Bandaríkjunum. Nýju lögin ná hins vegar ekki aðeins yfir það hvar bílarnir eru samsettir, heldur einnig hvaða hugbúnaður, raftækni og eignarhald liggur að baki. Ef tengslin við Kína þykja of mikil, gilda takmarkanirnar einnig um bíla sem framleiddir eru innan Bandaríkjanna.
Polestar mun þó ekki hverfa af bandaríska markaðnum á einni nóttu. Fyrirtækið ætlar að halda áfram að selja núverandi birgðir af Polestar 3 og Polestar 4, auk þess sem núverandi viðskiptavinum er tryggð áframhaldandi þjónusta og viðgerðir.
Engir nýir bílar af árgerð 2027 eða síðar verða hins vegar leyfðir til sölu miðað við núverandi reglur. Í tilkynningu frá Polestar kemur fram að fyrirtækið muni nú flytja sjónarhorn sitt og leggja aukna áherslu á Evrópumarkað.







