Hraðatakmarkanir virtar í enn meira mæli  í Noregi

Lestími: < 1 mín

Ert þú einn af þeim sem keyrir örlítið yfir hraðamörkin vegna þess að „allir aðrir gera það samt“? Norska vegagerðin, Statens Vegvese, kveður þá afsökun algjörlega niður.

Nýleg úttekt frá norsku samgönguhagfræðistofnuninni,TØI, sýnir nefnilega að þú hefur rangt fyrir þér. Sú mýta að norskir ökumenn blási sameiginlega á hraðatakmarkanir stenst einfaldlega ekki. Meirihlutinn fer reyndar eftir hraðatakmörkunum og sú tala fer hækkandi.

Jákvæð aukning

Síðan 2006 hefur hlutfall löghlýðinna ökumanna hækkað úr 45,6% í 61,9% árið 2024. Núna er það því ríflegur meirihluti sem virðir hraðakstursmörk.

Að sögn Guro Ranes, deildarstjóra umferðaröryggismála hjá norsku vegagerðinni, snýst ökuhraði að miklu leyti um félagslegan hópþrýsting. Við keyrum nefnilega ekki bara eftir skiltunum, heldur líka eftir því sem við höldum að ökumaðurinn á næstu akrein sé að gera.

,,Þess vegna nýtum við innsýn úr hátternisfræði þegar við þróum aðgerðir og ögrum þeim misskilningi að „allir keyri of hratt“, segir Guro Ranes, deildarstjóri umferðaröryggismála hjá norsku vegagerðinni.

Sálfræði notuð til að breyta sýn fólks á hvað telst „eðlilegt“

Í herferð vegagerðarinnar, „Meirihlutinn virðir hraðakstursmörk“, var hrein og klár sálfræði notuð til að breyta sýn fólks á hvað telst „eðlilegt“. Og það virkar: Nú finnst færri mönnum í lagi að keyra „aðeins yfir“.

,,Við sjáum breytingu á því hvernig ökumenn upplifa hraða og væntingar annarra. Og þetta skiptir máli þegar fleiri upplifa að það sé venjulegt að fylgja hraðatakmörkunum, verður líka auðveldara að gera það sjálfur. Við manneskjurnar viljum nefnilega fylgja hjörðinni, segir Ranes.

Deila grein: