Vesturlandsvegur í gegnum Mosfellsbæ: Sá kafli sem er milli Skarhólabrautar og Hafravatnsvegar.

Umferð eykst á Hringveginum eftir þriggja mánaða samfelldan samdrátt

Lestími: < 1 mín

Eftir þriggja mánaða samfelldan samdrátt jókst umferð á Hringveginum á ný í júní. Umferð var 3,6% meiri en í júní í fyrra og má rekja aukninguna að stórum hluta til verulegrar fjölgunar ökutækja um mælisnið við Úlfarsfell, sem hefur töluverð áhrif á heildarniðurstöður. Frá áramótum hefur umferð aukist um 1,0% miðað við sama tímabil í fyrra að því er fram kemur í tölum frá Vegagerðinni.

 Umferð um Suðurland (-0,6%) og Vesturland (-1,8%) dróst lítillega saman en aukning mældist á öðrum svæðum. Mest jókst umferð um mælisnið við Úlfarsfell (9,5%) en mestur samdráttur varð um mælisnið á Mývatnsöræfum (-4,2%).

Umferð frá áramótum

Nú hefur umferðin aukist um 1,0%, frá áramótum, borið saman við sama tímabil á síðasta ári.  Þessi aukning verður að teljast lítil sé hún t.d. borin saman við meðalaukningu, á árabilinu 2022 – 2025 (4,8%).

Mest er ekið á föstudögum en minnst á laugardögum

Frá áramótum hefur umferð aukist á þriðjudögum (3,0%), miðvikudögum (3,2%), laugardögum (0,1%) og sunnudögum (3,6%) en dregist saman á mánudögum (-2,1%), fimmtudögum (-0,1%) og föstudögum (-1,0%). Mest er ekið á föstudögum en minnst á laugardögum.

Deila grein: