Þekktur bikblæð­ingakafli malbik­aður

Lestími: < 1 mín

Hringvegur (1) við veitingastaðinn Baulu í Borgarfirði verður malbikaður í vikunni. Um er að ræða 1,6 kílómetra langan kafla sem nær frá Gljúfurárbrú og um 1 km fram yfir gatnamót Borgarfjarðarbrautar (50) í norður.

Áætlað er að malbika miðvikudagskvöldið 24. ágúst og þriðjudagskvöldið 25. ágúst Áætlað er að framkvæmdirnar standi frá kl. 20:00 að kvöldi til kl. 07:00 að morgni bæði kvöldin.

Töluvert var um bikblæðingar á þessum kafla síðasta sumar en nú verður ráðist í malbikun á honum í því skyni að fyrirbyggja slíkar blæðingar og bæta ástand vegarins. Að öllu jöfnu er bundna slitlagið á Hringveginum á þessu svæði klæðing.

Vegagerðin stefnir jafnframt að því að malbika fleiri klæðingarkafla á Hringveginum (1) frá Borgarnesi á næstu árum. Framkvæmdin við Baulu er liður í áframhaldandi uppbygginu og viðhaldi vegarins á þessum hluta Hringvegarins (1).

Meðan unnið verður við malbikun verður umferðarstýring á svæðinu og hjáleiðir verða sérstaklega merktar. Nánari upplýsingar verður að finna á Umferðin.is.

Vegfarendur eru beðnir um að virða merkingar og hraðatakmarkanir og sýna aðgát við vinnusvæðið, sem er þröngt og fólk við vinnu nálægt umferð.

Deila grein: