BMW segir að yngri kynslóðir kalla eftir allt öðrum áherslum í bílahönnun

Lestími: 2 mín

Nýjustu bílategundir sem BMW hefur gefið út eru iX3, i3 og X5, en það má finna mjög takmarkað magn af tökkum. Skjátæknin er alltaf að verða betri og algengari í nýjum bílum. Samkvæmt Vikram Pawah, sem er forstjóri BMW í Ástralíu, eru þetta samfélagslegar breytingar og eru helst leiddar af yngri kaupendum. 

Vikram Pawah talar um að tækni á borð við snertiskjá og raddstýringu er að verða sífellt algengari í nútíma bifreiðum. Yngri kynslóðir eru að sækjast í þessar tæknibreytingar, þær vilja geta gert hlutina hraðar með snertingu og raddstýringu. Bílaframleiðendur verða að hafa það í huga þegar bílarnir eru hannaðir og má m.a. sjá að þessi þróun á sér stað á kínverska markaðnum. 

Yngri kynslóðir eiga oftast auðvelt með að skilja og tileinka sér nútímatækni. Ákvörðun BMW og fleiri bílaframleiðenda að skjávæðast og fækka tökkum hefur dregið mikinn innblástur frá Tesla. Innanrými Tesla er minimalískt og lítur framtíðarlegra út, en er einnig ódýrt. Það er ein helsta ástæðan af hverju þessi stefna, að færa allar stjórneiningar yfir á einn stóran snertiskjá, hefur náð svona miklum vinsældum. 

Snertiskjáir í bílum draga úr athygli ökumanns

Rannsóknir hafa sýnt fram á að snertiskjáir í bílum draga úr athygli ökumanns og geta því verið hættulegir. BMW hefur svarað því með að segja ,,fólki finnst róttækar breytingar alltaf óþægilegar”. Fyrirtækið hefur einnig bent á að nýi raddstýrði gervigreindaraðstoðarmaðurinn sé mun klárari og viðbragðsbetri þegar kemur að samræðum, miðað við áður fyrr. Slík kerfi eiga eftir að batna með tímanum. 

Snerti skjáir hafa sína kosti og galla. Það er hægt að troða inn fleiri aðgerðum og eiginleikum með snertiskjá en á sama tíma geta þeir verið truflandi fyrir ökumann. Samkvæmt BMW getur því raddstýring orðið einhvers konar millivegur, þar sem við tölum við gervigreindina í bílnum til þess að framkvæma aðgerðir fyrir okkur. Þetta eru miklar breytingar þegar kemur að venjum. 

Deila grein: