Ný reglugerð Evrópusambandsins um hönnun og endurvinnslu ökutækja hefur tekið gildi. Löggjöfin kveður á um hvernig bílar eru framleiddir, hvað verður um þá í lok líftíma þeirra og hver ber ábyrgðina þar á milli
Markmiðið er að efla hringrásarhagkerfið í bíla iðnaðinum, auka nýtingu verðmætra hráefna og minnka gæðatöp við endurvinnslu. Þetta mun einnig stuðla að því að tryggja stöðugra framboð á endurunnum hráefnum, draga úr ósjálfstæði Evrópu þegar kemur að innfluttum hráefnum og styðja við þrautseigan iðnaðargrunn.
Nýju reglurnar hvetja til hönnunar ökutækja sem auðveldar sundurtekningu og endurvinnslu. Þetta mun hjálpa bæði bíla- og endurvinnsluiðnaðinum að endurheimta hágæða íhluti og efni á skilvirkari hátt.
Reglugerðin setur einnig kröfur um notkun endurunninna efna í nýjum ökutækjum. Markmiðið er að hlutfall endurunnins plasts í nýjum ökutækjum verður 15% frá 2032 og svo 25% frá 2036. Til viðbótar á einnig að setja fram markmið fyrir endurunnið stál og ál, sem á að taka gildi frá 2033. Kröfur að endurunnu innihaldi er lykilskref í átt að því að skapa raunverulegan markað fyrir endurunnin hráefni.
Evrópusambandið vill veita fjárfestum og framleiðendum góðan fyrirvara og á reglugerðin að hvetja til fjárfestinga, halda verðmætum hráefnum innan evrópska efnahagssvæðisins og draga úr innflutningi hráefna.
Ný reglugerð Evrópusambandsins um hönnun og endurvinnslu ökutækja
Lestími: < 1 mín







