Í nýliðnum ágústmánuði jókst umferðin á Hringveginum um 4,5 prósent. Umferðin hefur ekki áður mælst jafn mikil í ágúst. Umferðin dróst saman á vormánuðum, í mars, apríl og maí en hefur annars aukist. Reikna má með að sólmyrkinn 12. ágúst hafi leitt til einhverra aukningar. Búast má við að umferðin í ár muni aukast í heild um 2,6 prósent á Hringveginum að því er fram kemur í tölum frá Vegagerðinni.
Umferðin í ágúst á Hringveginum jókst um 4,5%.
Umferðin í ágúst á Hringveginum jókst um 4,5%. Aldrei hefur áður mælst jafn mikil umferð í ágúst mánuði á Hringveginum. Helsta ástæða þess að meiri aukning mælist nú en í fyrri mánuðum kann að eiga sér skýringu í aukinni umferð vegna almyrkvans, sem var 12.ágúst.
Mest jókst umferðin yfir mælisnið á og í grennd við höfuðborgarsvæðið eða um 9,4% en samdráttur var um 7,4% á Austurlandi. Núna hefur umferð aukist um 1,7% frá áramótum sem er sama aukning og varð á þessum tíma á síðasta ári. Mest hefur umferð aukist á og í grennd við höfuðborgarsvæðið, en minnst á Vesturlandi.
Mest ekið á föstudögum – minnst á laugardögum
Það sem af er ári hefur mest verið ekið á föstudögum en minnst á laugardögum. Hlutfallslega hefur umferð aukist mest á sunnudögum en um 2% samdráttur varð í umferð á mánudögum.






