Alþingi samþykkti á síðasta vinnudegi fyrir sumarfrí um stofnun innviðafélags sem á að fjármagna og byggja upp og reka stór samgöngumannvirki. Frumvarpið var samþykkt með 34 atkvæðum stjórnarliða en stjórnarandstæðingar greiddu ekki atkvæði um frumvarpið. Stjórnarliðar lögðu áherslu á samþykkt frumvarpsins til að setja aukinn kraft í vegaframkvæmdir en stjórnarandstæðingar sögðu frumvarpið illa unnið og fela í sér gjaldtöku ofan á skatta sem þegar séu lagðir á ökutæki.
Ætlað að hraða uppbyggingu samgöngumannvirkja á Íslandi
Í gær kynnti nýtt ríkisfyrirtæki, Göng og brú, sem ætlað er að hraða uppbyggingu samgöngumannvirkja á Íslandi, áform sín fyrir innlendum og erlendum fjárfestum og verktökum á sérstökum kynningarfundi í Hörpu. Stofnun umrædds innviðarfélags mun eins og dæmin hafa sannað í gegnum tíðina fela í sér nýja gjaldtöku sem kemur til viðbótar þeim sköttum sem eiga að standa undir vegakerfinu.
Bíleigendur greiða nú þegar töluvert í ríkissjóð í gegnum ýmiss gjöld
Gagnrýnendur benda á að bíleigendur greiða nú þegar töluvert í ríkissjóð í gegnum kílómetragjöld, þungaskatta, virðisaukaskatt og innflutningsgjöld. Ennfremur benda gagnrýnendur á að íbúar á ákveðnum svæðum, þar sem göng eða brýr eru byggð, þurfi að greiða aukalega fyrir grunninnviði á meðan aðrir landsmenn nýta vegakerfið án beinna notendagjalda.
Eins og oft hefur verið bent á hafa íslenskir bíleigendur um áratugaskeið greitt háa skatta af ökutækjum og eldsneyti, og nú kílómetragjald, sem eiga að standa undir uppbyggingu og viðhaldi samgöngukerfisins. Að bæta beinum notendagjöldum við á tilteknum köflum breytir grundvallarforsendunni um að almennir skattar dekki grunninnviði.
Krefjast ávöxtunar á sitt fé
Þegar leitað er til innlendra og erlendra fjárfesta krefjast þeir ávöxtunar á sitt fé. Það þýðir að gjaldtakan þarf ekki bara að standa undir steypu og malbiki, heldur líka vaxtakostnaði og hagnaði fjárfesta. Kostnaður sem notandinn á endanum ber.
Fram kom í máli Daða Más Kristóferssonar, fjármála- og efnahagsráðherra, á fundinum í gær að tilkoma innviðafélagsins Göng & brú veiti vegfarendum valkost um að flýta för sinni með greiðslu á veggjöldum líkt og Hvalfjarðargöngin gerðu á sínum tíma.
,,Til þess að hægt sé að flýta slíkum verkefnum sé nauðsynlegt að fá fjárfesta úr einkageiranum inn í verkefnin – bæði innlenda og erlenda,“ segir ráðherra og hafnar því að með þessu sé verið að einkavæða ákveðin samgöngumannvirki.
Fyrstu verkefnin eru ný Ölfusárbrú, Sundabraut í Reykjavík og önnur jarðgöng við Hvalfjarðargöng
Fyrstu verkefnin sem heyra undir fyrirtækið eru ný Ölfusárbrú, Sundabraut í Reykjavík og önnur jarðgöng við Hvalfjarðargöng. Samanlagt er áætlað að þessi verkefni kosti um 150 milljarða króna á næsta áratug. Uppbygging verkefna og fjármögnun þeirra verður fyrst og fremst hlutverk innviðafélagsins. Vegagerðin haldi þó áfram að reka vegakerfið. Samvinna félagsins og Vegagerðarinnar verði þó mikil. Fjármögnun þeirra mannvirkja sem félagið hyggst byggja verður að hluta greidd með veggjöldum.







