Toyota stefnir á vetnisknúinn Hilux árið 2028

Lestími: < 1 mín


Toyota hefur staðfest að níunda kynslóð Hilux mun fá útgáfu sem verður vetnisknúinn, sem kemur sennilega út árið 2028. Japanski bílaframleiðandinn hefur verið brautryðjandi í vetnis tækni og vill halda áfram með það markmið.

Rafmagns Hilux mun hafa u.þ.b. 267 km drægni

Toyota hefur ekki enn gefið upp tæknilegar upplýsingar, en þeir stefna á að drægni bílsins verði í kringum 400 km samkvæmt WLTP-staðlinum og að bíllinn hafi um 2.500 kg dráttargetu. Ef þeir ná þessum markmiðum þá myndi vetnis útgáfan hafa gott forskot á rafmagns útgáfuna.

Rafmagns Hilux mun hafa u.þ.b. 267 km drægni samkvæmt WLTP, sem er talsvert styttri drægni en þeir stefna með vetnis útgáfunni. Auk þess dregur rafmagns útgáfan aðeins 1.600 kg.

Bílaframleiðandinn hóf framleiðslu á vetnisknúnum Hilux árið 2022 og frumsýndi fyrstu frumgerðina ári seinna. Um 2024 höfðu 10 eintök verið framleidd í verksmiðju fyrirtækisins í Burnaston í Bretlandi, þar sem fimm bílar voru prófaðir í mismunandi aðstæðum og hinir voru sýndir á sýningum. Þessar frumgerðir fengu mikið lánað frá Mirai, vetnisbíll sem Toyota hefur þróað lengi, þar sem 180 hestafla rafmótor knúði afturhjólin.

Toyota eru framarlega í vetnisbílum

Toyota eru framarlega í vetnisbílum og hafa verið lengi að þróa þessa tækni. Fyrirtækið hóf fyrst þróunina árið 1993 þegar þeir framleiddu fyrsta Toyota Mirai bílinn. Bílaframleiðandinn hefur meira að segja framleitt vetnisknúinn GR Corolla. Vetnisbílar er spennandi þróun og annar valkostur við rafmagninu.

Aðal spurningin er hvort að innviðir fyrir almenna vetnisbíla séu nógu margir. Á Íslandi virðist ekki vera til margar vetnis stöðvar, en gæti verið meiri menning fyrir vetnisbílum í öðrum löndum.

Deila grein: