Það styttist í fyrsta frostið, fyrstu hálkuna og fyrstu morgnana þar sem skafa þarf rúðurnar. Smá fyrirhyggja núna getur sparað bæði fyrirhöfn, kostnað og óþægindi þegar vetrarfærðin skellur á. FÍB hefur tekið saman helstu atriðin sem bifreiðaeigendur ættu að huga að áður en veturinn gengur í garð.
Ísland er vetrarland þar sem veður og akstursskilyrði geta breyst á örskotsstundu. Ökumenn geta ekki gengið að því vísu að helstu vegir séu alltaf auðir, og það er sameiginleg ábyrgð vegfarenda og veghaldara að tryggja öryggi í umferðinni. Hlutur ökumannsins felst einkum í tvennu: að bíllinn sé í góðu standi og að aksturslagið sé miðað við aðstæður.
Dekkin – mikilvægasti öryggisbúnaðurinn
Snertiflötur hvers dekks við veginn er ekki stærri en lófi eða póstkort. Það eru þessir fjórir litlu fletir sem bera alla hemlun, stýringu og grip bílsins – og því skipta dekkin meira máli en flest annað þegar vetrarfærð er annars vegar.
Reglurnar í stuttu máli
- Heimilt er að aka á nagladekkjum frá 1. nóvember til 14. apríl. Utan þess tíma eru nagladekk bönnuð.
- Lágmarksmynsturdýpt vetrardekkja er 3 mm, en FÍB mælir með að lágmarki 4 mm.
- Óháð dagsetningum ber ökumaður ábyrgð á því að bíllinn sé búinn dekkjum sem hæfa aðstæðum hverju sinni. Lögregla kannar ástand dekkja þegar hún kemur á vettvang umferðaróhapps.
Hvenær á að skipta? Gúmmíblanda sumardekkja byrjar að stífna þegar hitinn fer niður fyrir um +7°C og í miklu frosti verða þau nánast eins og hart plast. Vetrardekk eru hins vegar hönnuð til að haldast mjúk og grípa í kulda. Góð þumalputtaregla er því að skipta þegar meðalhitinn fer að nálgast 7 gráður – ekki bíða eftir fyrstu hálkunni.
Hvaða vetrardekk henta? Í ítarlegri grein á FÍB Fréttum, Val á vetrardekkjum, fer Róbert Runólfsson, verkfræðingur sem hefur starfað við þróun aksturseiginleika hjá Volvo Cars í Svíþjóð og stýrt þar vetrardekkjaprófunum, yfir helstu gerðirnar. Í stuttu máli stendur valið á milli þriggja flokka:
- Mið-evrópsk vetrardekk – mildustu vetrardekkin, hönnuð fyrir blauta og fremur snjólétta vetur. Góð í bleytu og á auðu malbiki en hafa minna grip í snjó og hálku.
- Norræn (ónegld) vetrardekk – með mýkstu gúmmíblönduna, dýpra mynstur og fleiri míkróskurði sem grípa vel í snjó og ís. Ókosturinn er meiri hætta á floti í mikilli bleytu og lakari hemlun á þurru malbiki.
- Nagladekk – byggð á svipaðan hátt og norræn dekk en með nöglum. Bjóða framúrskarandi grip í hálku og á þjöppuðum snjó, en slíta vegum, valda svifryki og hávaða og grípa verr á auðu malbiki.
Róbert bendir jafnframt á að mikill misskilningur ríki hér á landi um svokölluð „heilsársdekk“. Oft eru það í raun vetrardekk sem seld eru undir því nafni, en raunveruleg heilsársdekk henta íslenskum vetraraðstæðum illa. Fyrir íslenskar aðstæður mælir hann með norrænum vetrardekkjum eða nagladekkjum.
Merkingarnar skipta máli. M+S („mud and snow“) er ekki vottun – framleiðandi getur sett hana á dekk án prófana. Þrítinda-snjókornamerkið (3PMSF) er hins vegar viðurkennd vetrardekkjavottun, þó að hún mæli aðeins grip í beinni línu á snjó. Því er skynsamlegt að skoða einnig niðurstöður óháðra dekkjakannana, eins og þeirra sem FÍB birtir árlega, áður en keypt er.
Fleiri góð ráð um dekkin
- Aldurinn skiptir máli. Gúmmí harðnar með árunum, jafnvel þótt mynstrið líti vel út. Á hlið dekksins er fjögurra stafa tala sem segir til um framleiðsluviku og ár (t.d. 4525 = vika 45, árið 2025). Góð regla er að nota dekk ekki lengur en 6–7 ár.
- Eins dekk allan hringinn. Best er að hafa fjögur eins dekk af sömu gerð. Gamla ráðið að setja betri dekkin aðeins á drifásinn er beinlínis hættulegt og raskar jafnvægi bílsins.
- Naglhreinsuð nagladekk eru ekki sumardekk. Og vetrardekk sem keyrð eru allt sumarið slitna hratt og hafa misst stóran hluta vetrareiginleika sinna þegar næsti vetur kemur.
- Loftþrýstingurinn. Þrýstingurinn fellur þegar kólnar – um það bil 0,07 bör fyrir hverjar 10°C. Mælið þrýstinginn þegar dekkin eru köld og hafa náð útihita, og gerið það reglulega yfir veturinn. Réttan þrýsting má finna á límmiða í hurðarfalsi eða í eldsneytislokinu.
- Berið saman verð. Verð á umfelgun getur verið mjög mismunandi milli verkstæða og því borgar sig að kanna markaðinn. Á dekkjaskiptin.is má bera saman verð á umfelgun, dekkjaskiptum og dekkjahótelum hjá yfir 50 verkstæðum um allt land, eftir bæjarfélagi, felgustærð og gerð bíls. Þar er einnig hægt að haka við FÍB-aðild og sjá hvar félagsmenn fá afslátt. Aukasett af felgum getur einnig borgað sig til lengri tíma.
Gátlisti fyrir bílinn
Flest af eftirfarandi getur bíleigandinn sjálfur athugað á stuttum tíma – eða fengið verkstæði til að fara yfir í haustskoðun.
- Rafgeymirinn. Kuldinn reynir mikið á rafgeyminn og hann er algengasta ástæða þess að bíll fer ekki í gang á köldum morgni. Ending rafgeyma er gjarnan 3–5 ár. Ef geymirinn er eldri en þriggja ára er skynsamlegt að láta mæla hann. Hleðsluspenna bílsins á að vera á bilinu 14,2–14,5 volt.
- Kælivökvinn. Frostþol kælivökvans ætti að vera að minnsta kosti -25°C. Frostlagarmæli má víða fá lánaðan á smur- og bensínstöðvum. Athugið einnig slöngur og hosuklemmur. Gömlum frostlegi má ekki hella í niðurfall.
- Rúðuvökvi og þurrkublöð. Fyllið á frostþolinn rúðuvökva og skiptið um slitin eða sprungin þurrkublöð. Tjöru má oft ná af blöðunum með tusku og tjöruhreinsi. Gott útsýni er grundvallaröryggisatriði.
- Ljósin. Gangið hringinn í kringum bílinn og athugið öll ljós. Hreinsið ljósker reglulega, því salt og tjara draga verulega úr ljósmagni. Passa skal að nota ekki of sterk hreinsiefni.
- Bremsurnar. Tæring og óhreinindi geta dregið úr virkni hemla, ekki síst á afturhjólum. Látið fara yfir bremsurnar ef einhver vafi leikur á ástandi þeirra.
- Læsingar og þéttilistar. Sílikon á þéttilista hurða kemur í veg fyrir að hurðir frjósi fastar. Gott er að setja olíu í læsingar þótt svo að bíllinn sé einungis opnaður með fjarstýringu.
- Bón og þrif. Góð bónhúð dregur úr því að snjór og ís festist og ver lakkið gegn götusaltinu.
- Eldsneytið. Í hálftómum tanki getur raki þést og myndað ís sem truflar gang vélarinnar. Haldið tankinum vel fylltum og að bensín verði ekki of gamalt t.d. á tengiltvinnbílum.
- Skynjarar og myndavélar. Flestir nýrri bílar eru búnir fjölda skynjara og myndavéla sem lesa í umferð og aðstæður, og til að öryggisbúnaðurinn virki sem best þarf að halda þeim hreinum og lausum við snjó og ís – einkum efst fyrir miðri framrúðu við baksýnisspegilinn, í miðju grillinu, á fram- og afturstuðara og á myndavélunum sjálfum.
Rafbílar og tengiltvinnbílar
Undirbúningur rafbíla er í grunninn sá sami og annarra bíla, en nokkur atriði þarf að hafa sérstaklega í huga:
- 12 volta rafgeymirinn gleymist oft. Þó að drifrafhlaðan knýi bílinn áfram stýrir litli 12 volta geymirinn öllum tölvubúnaði bílsins. Slappur geymir getur valdið villumeldingum og jafnvel komið í veg fyrir að bíllinn opnist eða hefji hleðslu.
- Drægnin minnkar í kulda. Uppgefin WLTP-drægni miðast við 14–23°C hita – mun hlýrra en íslenskur vetur. Kuldinn dregur úr virkni rafhlöðunnar og miðstöðin tekur til sín mikla orku. Gerið ráð fyrir töluvert minni drægni og skipuleggið lengri ferðir með hleðslustöðvar í huga.
- Forhitið í hleðslu. Notið forhitun á meðan bíllinn er tengdur við hleðslu, og notið frekar sætis- og stýrishita en að kynda allt rýmið. Sé forhitun á drifrafhlöðu í boði tekur bíllinn hraðar við hraðhleðslu.
- Hleðslulúgan. Lúgur og læsingar í hleðslutengjum geta frosið. Aldrei skal þvinga þær upp með afli. Ef allt er frosið má leggja poka með volgu vatni að lúgunni – en ekki hella heitu vatni á bílinn, sem getur valdið vandræðum síðar og jafnvel komist inn í rafbúnað.
Búnaður sem ætti að vera í bílnum
Yfir vetrarmánuðina mælir FÍB með því að eftirfarandi sé alltaf í bílnum:
- Ísskafa og snjókúst
- Snjóskófla
- Startkaplar og dráttartóg
- Vasaljós og endurskinsvesti
- Sjúkrakassi
- Hlýr fatnaður, húfa, vettlingar og teppi
- Ferðahleðslukapall fyrir rafbíla
Í vefverslun FÍB má finna vetrarvörur á frábærum kjörum.
Vetrarakstur – aksturslagið skiptir sköpum
Jafnvel best búni bíllinn kemur ekki í stað skynsamlegs aksturslags. Nokkur lykilatriði:
- Kannið færð og veður áður en lagt er af stað. Upplýsingar um færð og ástand vega má finna á umferdin.is og í upplýsingasíma Vegagerðarinnar, 1777. Reiknið með að ferðin taki lengri tíma en venjulega.
- Taka snjó af skynjurum. Flestir nýrri bílar í dag eru búnir fjölda skynjara sem tryggja
- Mjúkur akstur. Því minna sem gripið er, því mikilvægara er að aka af ró. Snögg hemlun, kippir í stýri og þungt ástig á inngjöf geta valdið því að bíllinn missi grip.
- Haldið góðri fjarlægð. Hemlunarvegalengd í hálku getur margfaldast. Aukið bilið á milli bíla verulega.
- Prófið gripið. Á öruggum stað, þar sem engin umferð er fyrir aftan, má prófa að hemla til að átta sig á hversu hált er. Endurtakið þetta, því aðstæður geta breyst hratt á leiðinni.
- Treystið ekki eingöngu á tæknina. ABS, spólvörn og stöðugleikastýring auka öryggið verulega, en ef ekið er of hratt geta þessi kerfi ekki gegnt hlutverki sínu.
- Varist glæra hálku og frostrigningu. Við slíkar aðstæður er hemlunarvegalengd mjög löng og öryggiskerfi bíla ráða illa við þær. Þegar færð er sem verst er best að láta bílinn bíða.
- Sýnið snjóruðningstækjum þolinmæði. Þau aka hægt af ástæðu og ökumaður þeirra hleypir umferð fram hjá þegar óhætt er. Áhættusamur framúrakstur stofnar öllum í hættu.
Einnig er vert að hafa í huga að eldsneytiseyðsla eykst í kulda – munurinn milli sumars og vetrar getur numið allt að 20%.
FÍB er til staðar í vetur
Félagsmenn FÍB eiga aðgang að FÍB Aðstoð ef bíllinn bilar, rafgeymirinn gefur sig eða dekk springur. Þá veitir tækniráðgjöf FÍB félagsmönnum ráðgjöf um viðhald, dekkjaval og annað sem tengist rekstri bílsins. Ítarlegri ráð um vetrarakstur má finna á vef FÍB.
Ekki félagi? Kynntu þér kosti aðildar að FÍB og vertu tilbúin(n) fyrir veturinn.
Akið varlega og góða ferð í vetur!
Lesa meira







