Volkswagen-samsteypan gengur nú í gegnum erfiða tíma þar sem sala á heimsvísu hefur dregist saman, sérstaklega á lykilmörkuðum í Kína og Bandaríkjunum. En það er vonarljós í Evrópu þar sem rafbíla pantanir eru að aukast.
Bílarisinn Volkswagen stendur frammi fyrir mörgum áskorunum um þessar mundir. Hagnaður fyrirtækisins hefur dregist saman og stjórnendur kalla eftir víðtækum niðurskurði, sem starfsfólk verkalýðsfélög hafa mótmælt.
Nýjustu tölur sýna að sala á fyrri helmingi ársins 2026 er heldur rýr. Fyrirtækið afhenti 4,13 milljónir ökutækja á heimsvísu, sem er sex prósenta samdráttur á milli ára.
Kína og Bandaríkin valda vonbrigðum
Samdrátturinn er mestur á tveimur stærstu markaðssvæðum heims. Í Bandaríkjunum hafa afhendingar dregist saman um átta prósent, þar sem afnám ívilnana til rafbílakaupa og hækkandi innflutningstollar hafa haft afgerandi áhrif. Ástandið er talsvert verra í Kína sem er öflugasti bílamarkaður veraldar um þessar mundir. Þar nam samdrátturinn heilum 26 prósentum. Margir Volkswagen bílar, hannaðir sérstaklega fyrir Kínamarkað, hafa ekki náð hylli kínverskra neytenda.
Ljósglæta í myrkri á Evrópumarkaði
Þrátt fyrir þessa erfiðleika á stóru mörkuðunum er staðan ekki alvond. Fyrirtækið sækir fram í Suður-Ameríku og í Evrópu.
„Það er sérstaklega ánægjulegt að sjá að ‘Electric Urban Car’-línunni okkar, sem var kynnt fyrir örfáum vikum, er mjög vel tekið af viðskiptavinum á heimaslóðum,“ Marco Schubert, sölustjóri Volkswagen, í fréttatilkynningu.
Pantanir á rafbílum í Evrópu jukust um 50 prósent á öðrum ársfjórðungi. Þar vega þyngst nýjar gerðir smábíla sem væntanlegar eru á markað í haust s.s. VW ID. Polo, Skoda Epiq og Cupra Raval. Þegar eru komnar yfir 54.000 pantanir í þessar gerðir einar og sér.

Pantanir til samsteypunnar (fyrir allar gerðir drifrása) hafa aukist um fjögur prósent, og pöntunarsöfnunin óx um tólf prósent miðað við lok ársins 2025. Hlutfall rafbíla af óafgreiddum pöntunum er nú rúmlega 30 prósent. Söluhæsti rafbíll samsteypunnar það sem af er ári er Skoda Elroq, en 59.900 eintök hafa selst af honum.

Dræm sala í Noregi
Ef litið er til nágranna okkar í Noregi þá sýna sölutölur 21 prósent samdrátt samanlagt fyrir allar tegundir samsteypunnar, Audi, Bentley, Cupra, Lamborghini, Porsche, Skoda og Volkswagen, á milli ára. Á fyrri helmingi ársins voru afhentir 14.176 nýir bílar samanborið við rúmlega 18.000 bíla á sama tímabili í fyrra.







